22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í B-deild Alþingistíðinda. (576)

56. mál, útflutningur á kjöti

*Pétur Ottesen:

Ég vildi aðeins skjóta því til hæstv. forseta, hvort ekki er rétt, þar sem fram er komin nú á síðustu stundu skrifl. brtt. við frv., að fresta málinu, svo menn geti fengið að athuga till. prentaða og bera hana saman við lögin. Ég held, að það verði heppilegri leið, að gefa mönnum nægilegt tóm til að átta sig á þessu öllu saman.