15.03.1937
Efri deild: 19. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (597)
60. mál, læknishéruð
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Ég vil leyfa mér að þakka hv. allshn. fyrir að hafa flutt frv. þetta. Við orð hv. frsm. hefi ég og litlu að bæta, umfram það, sem stendur í grg. landlæknis.
Eins og hv. frsm. gat um, þá er hér farið fram á að gera sérþekkingu á vissu sviði sem skilyrði fyrir veitingu þessara embætta, auk þess sem laun við þau eru hækkuð úr 2500 kr., eins og þau eru á Akureyri, upp í 6 þús. kr.
Ég held, að það orki ekki tvímælis, að störfin við þessi embætti séu orðin svo umfangsmikil, að ofætlun sé einum manni að komast yfir þau, eins og þeim er skipað nú. Má því búast við, ef ekki verður bót á ráðin, að aðalstörfin yrðu látin sitja á hakanum fyrir aukastörfunum.
Ég get tekið undir það með hv. frsm., að eins og kjör fjölda lækna eru nú, myndi verða erfitt að fá vel hæfa menn í þessi embætti, ef aðeins er gengið út frá 6 þús. kr. launum, aukatekjur engar látnar fylgja. En eins og hv. þm. geta séð á þskj. 69, þá er í grg. landlæknis bent á ýms störf í sambandi við þessi embætti, sem nokkrar aukagreiðslur myndu fylgja. Með því að láta þau fylgja embættunum mætti bæta þau nokkuð upp. Annars mæli ég það bezta með frv. og vænti, að það fái greiða göngu í gegnum þingið.
Hv. þm. N.-Ísf. beindi til mín fyrirspurn um það, hvort ekki væri ástæða til að taka Ísafjörð með í frv., þar sem þar hagaði mjög svipað til í þessu efni og á Akureyri. Út af þessari fyrirspurn hv. þm. skal ég taka það fram, að ég átti tal um þetta atriði við landlækni áður en frv. var endanlega samið. Kom okkur þá saman um það, að eins og sakir stæðu nú væri ekki ástæða til þess að taka Ísafjörð með. Fyrst og fremst sökum þess, að engar líkur væru til, að það embætti losnaði fyrst um sinn. Væri því rétt að bíða átekta með það og sjá, hvernig þessi skipun að því er snertir þessi tvö embætti reyndist. Verði sú raunin á, að hún gefist vel, er hugmyndin, að allir stærri kaupstaðirnir verði settir undir sama skipulag í þessum efnum.