15.03.1937
Efri deild: 19. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (600)

60. mál, læknishéruð

*Þorsteinn Briem:

Ég vil leyfa mér að gera fyrirspurn til hæstv. ráðh. um það, hvernig hugsað er að sjá fyrir rétti þeirra íbúa í Akureyrarlæknishéraði, sem búa utan kaupstaðarins. Það stendur í 1. gr. frv., að það megi jafnvel með öllu leysa viðkomandi héraðslækni undan skyldu til þess að stunda almennar lækningar. Ef það væri hugsað að því er snertir Akureyrarhérað, þá er a. m. k. hugsanlegur sá möguleiki, að þeim, sem utan kaupstaðarins búa, geti orðið erfitt um að fá lækni í einstökum tilfellum, þar sem hinir praktiserandi læknar, sem að vísu eru margir á Akureyri, geta ef til vill litið svo á, að þeir séu ekki skyldugir til að fara hvernig sem á stendur út um byggðirnar í kring til að inna af hendi læknisstörf.

Ég vildi aðeins gera þá fyrirspurn til hæstv. ráðh., hvernig þessu væri háttað.