15.03.1937
Efri deild: 19. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

60. mál, læknishéruð

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Af því að hv. 1. þm. Eyf. gerði mér þann heiður að spyrja mig sem frsm. n., hvað meint væri með þessu frv., þá vil ég segja það með fáeinum orðum. Það stendur hér í 1. gr. frv., að á þessum 2 stöðum, sem um er að ræða, skuli ráðh. setja héraðslæknum sérstakt erindisbréf, og ég leit svo á, og ég hygg, að n. hafi einnig litið svo á, að í þessu erindisbréfi ætti að vera ákveðið, hvernig færi um læknisstörf þeirra gagnvart þeim mönnum, sem eru búsettir utan kaupstaðanna. Ef hv. þm. þykir þetta ekki nógu skýrt, þá er það hans að koma með brtt., en mér finnst það alveg nægjanlega skýrt, að ráðh. geti séð fyrir læknishjálp handa þessum héraðsbúum samkv. því orðalagi, sem er í 1. gr., og ég veit, að hv. 1. þm. Eyf. mun ekki efast um, að núv. stj. muni sjá fyrir þörfum þessara kjósenda hans.