19.03.1937
Neðri deild: 22. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (663)
41. mál, verkfræðingar, húsameistarar eða iðnfræðingar
*Frsm. (Emil Jónsson):
Hv. þm. Ak. hefir nú borið fram rök þau, er hv. minni hl. n. telur sig hafa fyrir sínum brtt., og fannst mér þau satt að segja ekki veigamikil. Hann sagði, að dæmið með lögfræðingana og læknana væri ekki sambærilegt við þá menn, sem frv. fjallar um, fyrir það, að ekki væri til nema einn skóli, er útskrifaði lögfræðinga og lækna, en fjölmargir skólar veittu menntun verkfræðingum, húsameisturum og iðnfræðingum. Þetta sýnir það, að hv. þm. er hér með allt önnur hugtök, sem hann leggur inn í þessa titla, heldur en þau, sem lögfesta á með frv. Það er skiljanlegt, að margir skólar veita ýms mismunandi stig fræðslu í þessum greinum, en í frv. er miðað við þá eina skóla, er veita fullkomna fræðslu í hverri grein. Því eiga þessir menn að vera fullkomlega sambærilegir við lögfræðingana og læknana. Það eru náttúrulega til mismunandi stig í fræðslu skipstjórnarmanna. Það eru farmannspróf og meira og minna skipstjórapróf, en þessi próf gefa mismunandi réttindi eftir stigum. Það hefir verið svo, að menn hafa kallað sig verkfræðinga, þótt þeir hafi ekki tekið nema hin lægstu stig í verkfræðisnámi, og n. er sammála um, að svo eigi það ekki að vera eftirleiðis, það eigi að útiloka aðra frá því að kalla sig því nafni en þá, sem tekið hafa fullnaðarpróf í þeirri grein, en n. er ekki sammála um þá menn, sem tekið hafa sér þetta nafn án þess að uppfylla þetta skilyrði.
Hv. þm. sagði, að ég teldi þennan ágreining lítinn, en hann teldi hann mikilvægan. Ég sagði ekki, að ágreiningurinn væri lítill. Ég talaði um, að hann væri aðeins um eitt atriði. Það var að skilja á hv. þm., að hér væri borið fram mál, sem meiri hl. þeirra, sem í hlut eiga, væri mótfallinn. Út af því vil ég geta þess, að af 60 til 70 manns, sem eru í arkítektafélaginu, eru það einir 6 menn, sem hafa mótmælt frv., og ég hygg, að það séu þeir menn, sem hafa kallað sig verkfræðinga án þess að hafa til þess tilskilda menntun. hér eru aðeins 6 menn af a. m. k. 60, sem mótmæla frv., hinir telja það réttlátt. Húsameistara hafa kallað sig allir þeir, sem eitthvað hafa lært í þeim efnum, hvort sem nám þeirra hefir verið fullkomið eða ekki. Það er rétt, að nokkrir húsameistarar hafa myndað með sér félag, og að inngöngu í það fá ekki aðrir en þeir, sem lokið hafa fullnaðarnámi í þeirri grein, og það er ekki nema rétt, að þeir einir, sem hafa lokið slíku námi og prófi, hafi rétt til að dæma um hæfileika þeirra manna, sem eiga að fá að teljast húsameistarar án þess að hafa tekið slíkt próf. — Ég vil benda á það, að sama liggur til grundvallar með réttindi í iðngreinunum. Í iðnlöggjöfinni eru ákvæði um iðnráð, er skipuð séu þeim mönnum, er uppfylla hin lögskipuðu prófskilyrði, og þessi iðnráð eiga að dæma um það, hvort aðrir, er ekki hafa tilskilin próf, eigi að fá að kalla sig iðnaðarmenn þrátt fyrir það. Er þetta alveg sama fyrirbrigði og um er að ræða í þessu frv.
Ég tel svo ekki ástæðu til að ræða meira um þetta mál; það er fullkomlega upplýst, að ágreiningurinn er þessi: Á ráðh. að veita leyfin upp á sitt eindæmi, eða á hann að leita umsagnar sérfróðra manna í hverju einstöku tilfelli.