19.03.1937
Neðri deild: 22. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (665)
41. mál, verkfræðingar, húsameistarar eða iðnfræðingar
*Frsm. (Emil Jónsson):
Nokkur orð út af því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að það væru engin lög um þetta á Norðurlöndum. Það kann að vera, að það sé rétt, en ég vil benda á, að öll löggjöf þeirra landa, sem hafa sett lög um þetta, er svo ný, að hún er frá síðustu árum, eða frá 1930–1934, í flestum löndunum, en ekki nema í einstaka landi frá 1927–1929, og af þeim ástæðum getur verið eðlilegt, að Norðurlönd hafi ekki komið með. Það var samt ekki þetta, sem ég ætlaði að undirstrika hjá hv. þm., heldur hitt, sem ég er honum alveg sammála um, að til mismunandi menntunar ætti líka að svara mismunandi réttindi. Þetta er alveg rétt hjá honum, og það er einmitt það, sem á að ná með þessu frv. Við viljum, að aðeins þeir, sem hafa fengið fyllstu menntun í þessum greinum, sem hér um ræðir, fái leyfi til þess að kalla sig þessum nöfnum, en þeir, sem hafa fengið minni menntun, kalli sig öðrum nöfnum, alveg eins og gert er viðvíkjandi skipstjórum og vélstjórum. Um vélstjórana er það að segja, að þegar lögin um breyt. á vélstjóralögunum gengu í gildi, þá var undanþágumönnum sagt að fara í land, af því að þeir hefðu ekki nóga kunnáttu, og annaðhvort urðu þeir að hætta eða læra betur, og það er sama leiðin og hér er farin.