19.03.1937
Neðri deild: 22. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (671)

41. mál, verkfræðingar, húsameistarar eða iðnfræðingar

*Frsm. (Emil Jónsson):

Það er ekki hægt að segja, að margt eða mikið nýtt hafi komið fram um þetta mál við umr., en ég vildi aðeins segja nokkur orð út af því, sem hv. þm. V.-Sk. sagði, hvort ekki væri rétt að taka málið til nýrrar athugunar. Slíkt sé ég ekki, að muni hafa mikið upp á sig. Fyrir mitt leyti virðist mér ágreiningurinn vera þannig, að ekkert útlit sé fyrir, að við munum komast nær hver öðrum, þar sem við höfum alveg sinn hvora skoðun. Eftir því, sem fram er komið, sest ekki, að það sé annað, sem fyrir minni hl. vakir, en það, hvort þessir ágreiningsmenn skuli hlíta úrskurði kunnáttumanna eða ekki. Þeir vilja láta ráðh. dæma um það, en ekki leggja það undir dóm kunnáttumanna. Í Noregi var svipað frv. og þetta lagt fram fyrir nokkrum árum, og þar er talað um, hvernig dæma skuli þá menn, sem ekki hafa próf, en taldir hafa nokkurn rétt til að kalla sig verkfræðinga o. s. frv. Var til þess skipuð 7 manna n., og af þeim voru 5 verkfræðingar. Sé ég ekki annað en það sé nokkuð sama, hvort úrskurðað er, að stofna svipaða n. og þetta, eða hvort málunum verður vísað beint til stéttarfélaganna, en í öllu falli þarf menn, sem vit hafa á þessum efnum til að dæma rétt um þetta. Hæstv. ráðh. hefir ekki kunnáttu til að dæma þar um, nema með aðstoð sérfræðinga, og þarf ég reyndar ekki að vera að taka það fram. Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að hliðstæð löggjöf og þessi væri ekki til í öðrum löndum, en það er ekki rétt; hún er til, og meira að segja mjög ströng. (SK: Þetta er ekki rétt; ég sagði, að hún hefði fyrst verið sett fyrir 2 eða 3 árum). Það má rétt vera; ég veit ekki, hvenær lögin voru sett um verkfræðinga, en nú eru áreiðanlega skýr lög í nágrannalöndunum um þessa tegund manna.