08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (691)
116. mál, jarðræktarlög
*Jón Baldvinsson:
Það þýðir náttúrlega ekki mikið að gera aths. við þetta frv., ef svo er, að Framsfl., Sjálfstfl. og Bændafl. hafa komið sér saman um, að það skuli nú ná fram að ganga.
Ég vil þó gera þá aths., að ég tel, að 5. gr. frv. sleppi nokkuð miklu úr valdi þingsins með því að leggja það í vald Búnaðarfél., hvernig kosið sé til búnaðarþings. — Ég óttast sem sé, að með hinni miklu auknu ræktun, sem áfram heldur í kaupstöðum og kauptúnum landsins og í grennd við þau, þá njóti hlutaðeigandi menn ekki fulls réttar til þess að taka þátt í kosningum, miðað við það sem bændur hafa. Mér finnst því, að Alþ. sjálft verði að hafa eitthvað um þetta að segja, vegna þess að Búnaðarfél. eru faldar allmiklar framkvæmdir af því opinbera.
Þá þykir mér það ekki nema eðlilegt, sem verið hefir, að landbrh. ráði því, hver sé búnaðarmálastjóri. Það er eiginlega jafneðlilegt, að landbrh. skipi búnaðarmálastjóra, eins og hann skipar skrifstofustjóra í ráðuneyti þau, sem undir hann liggja, því Búnaðarfél. er í raun og veru deild í stjórnarráðinu, og aðalstarf þess er að framkvæma fyrir ríkið ýms verk, sem það leggur fé til.
Mér sýnist sem sagt, að Alþ. sleppi fullmiklu valdi í hendur Búnaðarfél., og óeðlilega miklu miðað við hið nána samband, sem verður milli landbúnaðarráðuneytisins og Búnaðarfél., og það samstarf, sem þar þarf að eiga sér stað. Náttúrulega væri réttast að hafa Búnaðarfél. aðeins deild í stjórnarráðinu, eins og Fiskifélagið ætti að vera, og þeir, sem framkvæmdirnar þar hafa, ættu að vera skrifstofustjórar ráðuneytisins.
Þessa aths. vildi ég láta fylgja frv. af hálfu okkar Alþfl.manna, þó það hafi kannske ekkert að þýða að malda í móinn, þegar þessi sterku öfl hafa tekið höndum saman.