08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (699)

116. mál, jarðræktarlög

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Þetta atriði er nú orðið nokkurnveginn útrætt. Þó vil ég víkja nokkrum orðum að því, sem hæstv. atvmrh. tók fram. Það má náttúrlega deila um það, hvort Búnaðarfél. sé opinber stofnun eða stéttarstofnun, en þó er ekki hægt að halda því fram með miklum rökum, að þetta félag sé ekki einmitt stéttarfélag, alveg sama eðlis eins og t. d. Alþýðusamband Íslands; félagssamtök bænda út um allt land kjósa þessa menn á búnaðarþing, og það er svipað fyrirkomulag í höfuðatriðum eins og hjá öðrum stéttarfélögum, sérstaklega eftir að beini kosningarrétturinn er kominn í lög félagsins. Hitt, sem hæstv. atvmrh. sagði, að félagið hefði mikinn fjárstyrk og að því væri falin framkvæmd ýmsra mála fyrir ríkið, breytir í sjálfu sér ekki félagsstarfseminni, því að þótt það yrði allt tekið af félaginu, þá yrði fyrirkomulagið á félagsstarfseminni alveg eins í grundvallaratriðum, að öðru leyti en því, að félagið hefði ekki yfir sama fjármagni að ráða. Búnaðarfél. var til áður en því var falið að hafa með höndum eins miklar framkvæmdir og gert var með jarðræktarlögunum frá 1923, og það hefði líklega verið til, þó að því væri ekki falin framkvæmd mála af Alþingi, og þetta sýnir, að hér er um stéttarfélagsskap að ræða eins og margra annara stétta í þjóðfélaginu, þó að þessu félaginu séu faldar meiri framkvæmdir af hálfu ríkisins en öðrum félögum.

Um hitt atriðið, sem hér hefir verið deilt um og menn virðast ekki hafa fengizt til að taka til greina leiðréttingu á, er það að segja, eins og tekið er fram í lögunum, að það á að kjósa búnaðarþing innan tveggja ára áður en næsta búnaðarþing kemur saman, en svo er aftur gert ráð fyrir, að það komi saman einskonar aukaþing í sumar og gangi frá reglugerðinni, og er það gert af því búnaðarþingi, sem nú situr, því að það leggur ekki niður umboð sitt fyrr en hinir fulltrúarnir verða kosnir, og þá verður að sjálfsögðu gengið frá reglugerðinni viðvíkjandi kosningum, bæði að því er snertir þetta atriði og önnur, áður en kosningar fara fram. Þessu var gert ráð fyrir, þegar gengið var frá þessu máli, og hefir verið upplýst í þessum umr. Það stendur enn óhaggað og hefir ekki verið reynt að hrekja það, og það vil ég undirstrika, að kosningarrétturinn, sem þeir menn höfðu, er búa í nágrenni við kaupstaði, var samkv. lögum, sem Alþingi gekk frá, svo þröngur, að það er óhugsandi, að hann verði þrengri, þar sem 20 menn, sem höfðu sinn hektarann hver, höfðu kosningarrétt á við einn bónda. Þetta var haft svona af því, að ekki var bent á aðra reglu um þetta, og þetta ákvæði verður að hafa í reglugerð, vegna þess að þarna er um svo breytilegt atriði að ræða. Það var t. d. stungið upp á því af búnaðarþingi, að þeir hefðu kosningarrétt, sem hefðu landbúnað að aðalatvinnu, hvað sem landstærð liði, en það útilokaði kosningarrétt þeirra, sem að vísu hafa ekki landbúnað að aðalatvinnu, en búa í námunda við kaupstað og hafa eitthvað annað að aðalatvinnu; en það var ekki rétt að útiloka þá. Þess vegna er það langeðlilegast, að þetta atriði sé tekið upp í reglugerð, og það stendur óhaggað, sem ég hefi sagt, að það er ekki hugsanlegt að þrengja þetta ákvæði frá því, sem var í lögunum eins og gengið var frá þeim á síðasta þingi.