08.04.1937
Efri deild: 34. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (700)

116. mál, jarðræktarlög

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Hæstv. forsrh. hélt því fram, að það væri enginn eðlismunur á Búnaðarfél. og Dagsbrún eða Alþýðusambandi Íslands. Það er reginmunur á afstöðu Alþingis til Búnaðarfél. annarsvegar og þessara félaga hinsvegar. Ég er þess fullviss, að hæstv. ráðh. mundi á það fallast, að ef Búnaðarfél. hefði ekki þann styrk, sem það hefir af opinberu fé, og væru ekki falin þau störf, sem því eru nú falin í lögum, mundi engum manni á Alþingi detta í hug að setja reglur um félagsstarfsemi þess umfram annan félagsskap í landinu, en ástæðan fyrir því, að verið er að setja nýjar reglur fyrir þetta félag, er sú, að það er miklu frekar, eins og ég gat um áðan, opinber stofnun, sem gegnir opinberum störfum í landinu, heldur en félagsskapur áhugamanna, sem vinnur eingöngu að þeirra málum, og það er ómögulegt að loka augunum fyrir þessari staðreynd.