12.04.1937
Neðri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (711)
116. mál, jarðræktarlög
*Emil Jónsson:
Ég ætla bara að undirstrika það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði. Ég er honum að mörgu leyti sammála. Ég er undrandi yfir því, að þetta mál skuli vera komið til 3. umr. án þess að hafa farið til n. Ég vil bera upp þá fyrirspurn, hvort þetta mál eigi ekki leið þangað, eins og önnur þau mál, er fyrir þingið koma. Mér finnst engin ástæða til þess að gera neina undanþágu með þetta, og óska ég, að því verði vísað til n.