12.04.1937
Neðri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

116. mál, jarðræktarlög

*Sigurður Einarsson:

Ég vil segja það, að ég er einn af þeim, sem kemur undarlega fyrir sjónir sú gersamlega stefnubreyting, sem hefir orðið á afstöðu Framsóknarfl. til þessa máls síðan jarðræktarlögin voru til umr. í fyrra. Það er vitanlega öllum ljóst af því, að um þetta hefir verið gerður sérstakur pólitískur samningur og að þeir hafa hlaupizt frá sinni fyrri afstöðu í þessu máli. Það mætti spyrja, hvers vegna sjálfstæðismönnum hefði verið það svo mikið kappsmál að losna við þetta ákvæði, að landbrh. skyldi samþ. val búnaðarmálastjóra, ef svo þetta val væri tryggt með ákvæðum sömu laga.

Til þess að þessi snúningur framsóknarmanna verði fullljós, vil ég leyfa mér að rifja upp það, sem sagt var hér á þingi í fyrra. Kem ég þá fyrst að ræðu hæstv. forseta þessarar d., Jör. Brynjólfssonar. Hann sagði í ræðu, sem hann flutti um þetta mál, og ég ætla að leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta: „Ég ætla þá með nokkrum orðum að víkja að þeim atriðum, sem ég hygg, að skipti allmiklu máli, og skal ég þá fyrst víkja að I. kafla, um stj. ræktunarmálanna og verkefni Bf. Ísl. og ákvæði, er þau áhrærir. Þar er gert ráð fyrir, að landbrh. hafi yfirstjórn þessara mála og sé æðsta vald, eins og tíðkazt hefir og er í gildandi lögum.“

Um val búnaðarmálastjóra farast honum svo orð: „Þá er lagt til, að val búnaðarmálastjóra sé bundið samþykki ráðh. Meðan valdsvið hans er jafnvíðtækt og nú er og félagið hefir með höndum jafnmiklar framkvæmdir fyrir hönd þess opinbera, þá virðist það vera rétt, ekki ótilhlýðilegt og í alla staði sanngjarnt, að val hans sé bundið þessu skilyrði, þar sem milli þessara manna hlýtur ætíð að vera mjög náin samvinna, og hefir það því eigi litla þýðingu, að reynt sé að búa svo um, að sú samvinna verði sem bezt.“

Ég hygg, að þessi orð sýni glögglega afstöðu Framsfl. til þessa máls í fyrra. Og þetta má rökstyðja með ummælum nokkurra annara framsóknarmanna, sem töluðu um málið á sömu lund og höfðu þá sömu afstöðu til þess og við Alþfl.menn höfum ennþá.

Skal ég ennfremur leyfa mér að minna á það, sem hv. 2. þm. N.-M. sagði um þetta. Hann sagði, með leyfi hæstv. forseta, þegar um I. kafla ræðir: „Mín skoðun er sú, að nú heyri undir Búnaðarfél. fjöldi verkefna, sem á það er dembt, en stjórnarvöldin í landinu ættu í raun og veru að sjá um. Þess vegna lít ég svo á, að búnaðarmálastjóri eigi að standa beint undir ríkisstj., eins og t. d. vegamálastjóri, sem hefir á hendi framkvæmdir fyrir ríkisvaldið.“ Þetta er rétt, því þær framkvæmdir, sem búnaðarmálastjóri hefir, eru í aðalatriðum sama eðlis og þær, sem vegamálastjóri hefir f. h. ríkisvaldsins. Og þessi hv. þm. skýrir þetta betur í fyrra, þegar hann virðist hafa þá afstöðu til þessa máls, sem við höfum nú. Hann segir beinlínis, að Búnaðarfél. eigi ekki að hætta störfum. Það sé misskilningur andstæðinga laganna, að reyna að leggja afstöðu hans út á þann veg. Hann bendir á, að Búnaðarfél. hafi margskonar önnur störf en þau, sem það vinni fyrir löggjafarvaldið. En svo segir þessi þm. það, sem ég vil ekki undirstrika, og sýnir, hvað hann er róttækur: „En framkvæmd jarðræktarl. heyrir ekki að neinu leyti undir umráð ísl. bænda.“ Það sé að öllu leyti sjálfsagt, að búnaðarmálastjóri standi beint undir stj. Það er hægt að finna ótal önnur atriði frá síðasta þingi, sem sýna, hvað framsóknarmenn hafa snarsnúizt í þessum málum; annaðhvort hafa þeir hlaupizt frá sinni fyrri afstöðu eða þeir hafa af einhverjum ástæðum, sem ekki mega koma í ljós, verið hraktir af sínu máli.

Ég gæti búizt við, að það kæmi sumum mönnum undarlega fyrir sjónir, sem voru hvattir fram til skeleggjaðrar baráttu, til þess að láta í ljós samstöðu sína við flokkinn í þessu máli, þegar þeir fá nú boð frá flokknum um það, að nú sé hann búinn að afneita afstöðu sinni frá í fyrra. Hvað álítur hv. þm. um búnaðarmálastjóra nú? Á hann að standa beint undir stj., eins og vegamálastjóri? Er framkvæmd jarðræktarlaganna nú hlutur, sem heyrir undir yfirráð íslenzkra bænda? Hvernig ætlar hv. þm. að fá menn til þess að trúa því, að það liggi nokkur skynsamleg rök fyrir því, sem hann heldur fram nú, ef það hafa legið einhver rök fyrir því, sem hann hélt fram í fyrra?