12.04.1937
Neðri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (719)

116. mál, jarðræktarlög

*Héðinn Valdimarsson:

Ég sé, að það, sem hv. þm. N.-M. upplýsti, snertir þetta mál ekki að neinu leyti.

Hvað snertir þá breyt., að í stað orðanna 9 fulltrúar af 14 komi nú 2/3 hlutar, þá er það vitanlega sama hlutfallið, en munurinn er sá, að nú getur einfaldur meiri hluti breytt lögunum, ef honum býður svo við að horfa. (PZ: Er það einfaldur meiri hl.?). Og hver sannar, að það verði ekki gert eftir eitt ár eða svo. Maður getur búizt við öllu úr þessari átt, eftir þessa breyt.