12.04.1937
Neðri deild: 36. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (722)
116. mál, jarðræktarlög
*Bjarni Ásgeirsson:
Ég þarf ekki mörgu að svara aðfinnslum jafnaðarmanna út af þeim breyt., sem hér liggja fyrir. Það hefir hv. 2. þm. N.-M. gert. Ég undirstrika það, sem hann kom inn á. Og það munu allir vita, sem fylgdust með umr. um þetta mál, að aðaláherzla var á það lögð hjá okkur framsóknarmönnum, að Búnaðarfél. Ísl. væri þannig uppbyggt, að vilji og skoðanir bænda í landinu gátu sem bezt notið sín. Og vegna þess að álitið var, að það gæti bezt orðið með beinum kosningarrétti og hlutfallskosningu innan þingsins, þá voru sett inn í jarðræktarl. ákvæði um það. Þeir, sem fylgzt hafa með þessari deilu, verða að kannast við, að þetta er þungamiðjan í því, sem Framsfl. hélt fram. En þegar samþ. var að taka þessi ákvæði inn í frv., þá var þessu marki náð og ekki ástæða til að halda þessu í l. á eftir. En ég fullyrði, eins og hv. 2. þm. N.-M., að þegar þessi skipun er einu sinni komin á í Búnaðarfél. Ísl., þá verður hún aldrei afnumin aftur. Það er ekki hægt að breyta þessu með einfaldri meirihlutasamþykkt Búnaðarfél. Ísl., heldur þarf 3/4 búnaðarþings til þess að breyta því. Og ég þori að fullyrða, að þessu verður ekki breytt í sama horf aftur héðan af.
Um það, sem hv. 2. þm. Reykv. ræddi um og honum fannst galli á frv., sem sé, að ekki væri ákveðinn kosningarréttur þeirra, sem búa í kaupstöðum og í nágrenni þeirra og stunda jarðrækt að einhverju leyti, — um það get ég upplýst ennþá, eins og hv. 2. þm. N.-M., að þetta var ekki sett inn í l. félagsins eins og sett var inn í jarðræktarl., vegna þess að mönnum þótti of þröngur kosningarréttur þeirra manna. Þess vegna er það víst, eins og hér hefir verið haldið fram, að þessi kosningarréttur þeirra verður rýmkaður, en alls ekki þrengdur frá því, sem í jarðræktarl. stóð.
Ég vil segja, út af þeim margendurteknu fullyrðingum hv. 9. landsk. um, að Framsfl. hefði snarsnúizt í þessu máli, að ég neita því með þeim rökum, sem færð hafa verið fram. Og það situr illa á þessum hv. þm. að tala hér um hringsnúning. Ég fullyrði, að hefði sá hv. þm. aldrei tekið á sig snarari snúning á sinni æfi heldur en Framsfl. í þessu máli, þá hefði hann. a. m. k. ekki fengið svima af sínum hringsnúningi.