09.04.1937
Efri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
87. mál, skráning skipa
*Frsm. (Ingvar Pálmason):
Þetta frv. er komið frá Nd., og er efni þess að gefa skipaeigendum kost á því að fá einkarétt á heitum skipa sinna. Undanfarið hefir það mjög tíðkazt, að skip væru samnefnd, en það er hvimleitt og hefir getað valdið óþægindum. Auk þess stendur svo á, að Eimskipafélag Íslands hefir valið sér sameiginlegt nafn á skipum sínum, með forskeyti, en skipanöfn þess hafa verið tekin upp af öðrum, oft alveg orðrétt. Þetta er óþarft, en getur valdið óþægindum, og því ástæðulaust annað en að gefa mönnum kost á að lögvernda nöfnin. Sjútvn. hefir borið frv. undir skipaskráningarstjóra, og ber fram nokkrar breyt. eftir bendingum hans, sem ekki skerða efni frv., en eru til fyllingar.
Brtt. 1.a. er á þá leið, að í staðinn fyrir „fjármálaráðuneytið“ komi: skipaskráningarstofan. Þetta er í samræmi við framkvæmd gildandi laga, því að maður frá fjármálaráðuneytinu er á skráningarskrifstofunni. — Brtt. 1.b. felur í sér nýtt ákvæði þess efnis, að ef skip er tekið af skrá, af því það er selt eða höggvið upp, haldi skipseigandi ekki rétti á nafninu, nema vissan tíma, því annars gæti litið svo út, að maðurinn héldi rétti til nafnsins meðan hann lifir.
Brtt. 2.a. felur í sér ákvæði til skýringar á því, hvernig þjóðernisskírteini eru gefin út.
Brtt. 2.b. ákveður, að lögin öðlist þegar gildi. N. leit svo á, að það væri rétt.