02.04.1937
Efri deild: 30. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í B-deild Alþingistíðinda. (774)
65. mál, héraðsskólar
*Atvmrh, (Haraldur Guðmundsson):
Ég vil fyrst leyfa mér að benda hæstv. forseta á, að það hlýtur að vera prentvilla í brtt., þar sem stendur „Reykjum í N.-Ísafjarðarsýslu.“ Ég skil það svo, að það eigi að vera „Reykjanesi í N.-Ísafjarðarsýslu“. (JAJ: Það er búið að athuga það). Um sjálft efni þessara brtt. skal ég segja það, að ég er í vafa um, að það sé nokkuð betri leið í þessum brtt. heldur en farið er fram á í frv. sjálfu, bæði að því er snertir framkvæmdir, ef samþ. verður, og eins að því er snertir líkur til þess, að málið nái fram að ganga í hv. Nd.
En þar sem hv. menntmn. er einróma á því að gera þessar breyt. á frv., þá skal ég ekki mæla gegn því, að svo verði, og get því vel látið mér lynda, að sú breyt. sé á gerð. Hinsvegar get ég ekki neitað því, að það væri eðlilegra, að sú tilhögun, sem ég gat um við 1. umr. málsins, yrði fyrst framkvæmd á einum stað, áður en ákveðið væri, að slíkt skyldi gert og fleiri stöðum. En af því að sá staður, sem hér er átt við, er út af fyrir sig ágætur, þá vil ég ekki setja mig gegn því, að þessi breyt. verði gerð á, ef verða mætti til þess, að frv. gengi greiðara gegnum þingið.