15.04.1937
Neðri deild: 39. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (787)

65. mál, héraðsskólar

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Þessu frv. var breytt talsvert í hv. Ed. frá því, sem það var, þegar það var borið fram, og að minni hyggju er það vafasamt, hvort sú breyt. er til bóta. Frv. var upphaflega við það miðað, að Reykjanesskólinn yrði styrktur til jafns við héraðsskóla, til þess að fá úr því skorið, hvort sú nýbreytni, sem þar hefir verið framkvæmd, væri að einhverju leyti hentug í sambandi við starfsemi héraðsskóla. En frv. var ekki, þegar það var lagt fram í Ed., um að bæta neinum nýjum skólum inn á héraðsskólalögin. En í sambandi við það, sem gert er ráð fyrir í 2. og 3. gr. frv. að því snertir skólann á Reykjanesi, er rétt að taka það fram, að ef frv. verður samþ., er alls ekki meiningin, að með þessu sé dregið frá þeim héraðsskóla, sem þarna er fyrir, það, sem hann að réttu lagi á að fá. Annars er sá galli á þessu frv., að það er hætt við, að með því séu héraðsskólalögin opnuð þannig, að fleiri og fleiri skólar bætist við án þess að full reynsla sé fengin á, að starfshættir þeirra séu þeir heppilegustu, sem völ er á.