16.04.1937
Neðri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (800)

65. mál, héraðsskólar

*Sigurður Einarsson:

Ég gerði grein fyrir því við 2. umr. í gær, að ef brtt. mín yrði felld, þá mundi ég bera fram brtt. um, að bætt verði við Reykhólum í Reykhólasveit, og lýtur brtt. mín að því, að ég hefi á þskj. 341 orðað 1. gr. frv. þannig, að þessi staður kemur einnig með í gr. Og ég verð að álíta, að það mæli alveg sama sanngirni með því, að þessi staður verði ákvarðaður sem héraðsskólastaður framtíðarinnar fyrir sveitirnar austan og norðan við Breiðafjörð og nærliggjandi sveitir, eins og gert hefir verið að því er snertir Varmahlíð í Skagafirði, að ákvarða þann stað sem skólasetur fyrir Skagafjörð.

Ætla ég svo ekki að eyða tíma hv. þd. til að reifa þetta, því að það var gert greinilega í gær. En ég þykist mega eiga þess vísa von, að þeir, sem stóðu að því að samþ. Varmahlíð sem skólasetur og líta þannig á nauðsyn Skagafjarðar, muni ekki reynast Breiðfirðingum og Barðstrendingum verr í þessu máli heldur en þeir reyndust Skagfirðingum í gær.