16.04.1937
Neðri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (807)

65. mál, héraðsskólar

*Sigurður Kristjánsson:

Ég skal ekki svona seint í umr. fara að lengja þær, enda yrði það kannske til þess að verða málinu að fótakefli að halda langar óþarfar ræður um það enn. Ég vil aðeins benda á þá hættu, sem í því liggur að fara að samþ. brtt. um málið á þessu stigi þess. Ef málið er tafið með því, eru allmiklar líkur til þess, að það komist ekki í gegn á þessu þingi. Ég vil því ekki, að afstaða mín til þessarar brtt. hv. 9. landsk. eða þessa Reykhólaskólamáls nú eins og á stendur, þó að ég greiði atkv. á móti brtt. hv. 9. landsk., sé skoðuð sem skilyrðislaus afstaða mín til þess, hvort hafa eigi héraðsskóla í Barðastrandarsýslu. Og ég vil benda hv. 9. landsk. á, að það getur oft verið lítill greiði við mál að taka það upp á vitlausum tíma, á meðan það er lítið undirbúið eða alls ekkert undirbúið. Það er vísast, að það er alls ekki komið fram, hverjir hugsað er, að ættu að standa að skólanum, hvort það er hreppurinn eða sýslan eða hvort sýslunefnd í Barðastrandarsýslu mundi verða því samþ. að velja þennan stað, og málið er að því leyti ótímabært nú. En þó ekki sé tekið tillit til þessarar síðastnefndu ástæðu, þá vil ég vekja athygli sérstaklega á því, að ef hv. þm. eru því hlynntir, að frv. þetta um breyt. á l. um héraðsskóla nái fram að ganga á þessu þingi, þá er einasta ráðið til þess að fella allar brtt. við það og samþ. það óbreytt. Síðar er nógur tími til að taka upp slík mál aftur sem þetta Reykhólamál.