16.04.1937
Neðri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (809)
65. mál, héraðsskólar
*Sigurður Einarsson:
Viðvíkjandi því, sem hv. þm. Barð. sagði í síðustu ræðu sinni, vildi ég ráðleggja honum að lesa upp og læra betur lexíurnar í þessu efni. Og réttara væri fyrir hann að rifja upp sína eigin sögu, þar sem hann er alltaf að hrapa. Og það sýna enda atkvæðatölur hans, að atkvæðin eru alltaf að reytast af honum.