19.03.1937
Neðri deild: 22. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (902)

79. mál, útrýming sels úr Húnaósi

*Flm. (Jón Pálmason):

Ég þarf ekki að láta mörg orð fylgja þessu frv. fram yfir það, sem stendur í grg. Eins og þar stendur, er frv. flutt samkv. tilmælum Veiðifélags Vatnsdalsár. Það fer fram á að fá leyfi til að útrýma sel á því svæði, sem um ræðir í frv. Ég hafði nokkra tilhneigingu til að ganga víðar út í þetta mál, þannig, að þar, sem fiskræktarfélög eru stofnuð, væri lögheimild til að útrýma vargnum, en ég sá, að það var svo flókið mál, að það gat verið athugavert á einstaka stöðum að fara út á þá braut, og bind því frv. eingöngu við það vatnasvæði, sem þar um ræðir. Eins og kunnugt er, er selur í hverjum vatnsós mesti vargur í laxveiði.

Viðvíkjandi fjárhagshlið á þessum hlutum vil ég taka fram til frekari skýringar, að samkv. mati, sem fram hefir farið, eru heimatekjur prestsins í Steinnesi fyrir selveiðina um 40 kr. á ári.

Vil ég svo ekki fara nánar út í þetta að sinni, en óska þess, að frv. verði, að umr. lokinni, látið fara til hv. landbn.