16.04.1937
Efri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (912)

79. mál, útrýming sels úr Húnaósi

*Frsm. (Pétur Magnússon):

Það er ekki sérlega margt um þetta mál að segja.

Á síðasta ári var stofnað veiðifélag við Vatnsdalsá, þannig að sameiginlegt veiðifélag var fyrir hana utan frá ósum og fram til dala. Þetta félag hefir, í því skyni að reyna að auka laxgengd í hana og gera hana á þann hátt arðbærari, hugsað sér að hefjast handa að útrýma sel úr Húnaósi, en þar hefir lengi verið mikið af sel. Í þessu frv. er ætlazt til þess, að þetta veiðifélag fái einkarétt á útrýmingu selsins úr Húnaósi. En vegna þess að presturinn í Steinnesi hefir þarna einhverjar selveiðitekjur, þá var álitið, að ekki yrði komizt hjá því að bæta honum þennan tekjumissi. Er því tekið fram í 2. gr., að ríkissjóður skuli greiða honum þessar bætur eins og þær eru metnar. Ég ætla, að það sé átt við eins og honum eru metnar þær til heimatekna, og ég held, að það sé ekki nema 40 kr. á ári.

Það orkar ekki tvímælis, að það er til mikilla hagsbóta fyrir þá, sem veiðina eiga, að selnum sé útrýmt, og má gera ráð fyrir, að laxveiðin verði með tímanum miklu arðbærari en hún er nú. Þessi á hefir að vísu verið leigð fyrir langt tímabil gegn lágu gjaldi, en það er af því, að laxgengdin er þar miklu minni en hún gæti verið.

Vil ég að lokum mælast til, að frv. nái fram að ganga.