16.04.1937
Efri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í B-deild Alþingistíðinda. (915)
79. mál, útrýming sels úr Húnaósi
*Jón Baldvinsson:
Það er alveg rétt, að því mundu fylgja meiri umsvif, ef einstakir menn ættu að greiða þetta, og gæti verið, að á því strandaði, að þeir vildu ekki borga þetta fé.
Ég hefi ekkert á móti því, að þetta sé greitt úr ríkissjóði, en vil aðeins slá föstum þeim skilningi, sem hér hefir komið fram við umr., hvað það er, sem á að greiða, svo að ég get þá fallið frá breyt. á þessu, því að mér skilst, að við séum sammála um þennan skilning, og ef enginn nýr skilningur kemur fram, þá er enginn vafi, við hvað er átt í frv.