16.04.1937
Efri deild: 42. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í B-deild Alþingistíðinda. (916)
79. mál, útrýming sels úr Húnaósi
*Páll Hermannsson:
Ég er fylgjandi þessu frv., og ég er því sérstaklega fylgjandi vegna þess, að mér finnst, að það muni verða í mörgum tilfellum rétt í framtíðinni, að ríkissjóður taki þátt í því að útrýma sel úr veiðiám. Hér er nú um svo lítið að ræða, að um það geta menn varla orðið ósammála, en það hagar sumstaðar svo til, að um meiri selveiði er að ræða, og þá líklega um leið meiri laxvonir. Ég er sérstaklega meðmæltur þessu frv. vegna þess, að ég þykist sjá fram á, að það verði víðar að leitað til ríkissjóðs um stuðning til útrýmingar sels og aukningar laxveiði, sem meira gagn mun að fyrir fólkið. Þó selveiði geti verið góð hlunnindi, þá eru oftast miklu fleiri, sem geta notið hlunninda af laxveiðinni.