10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (926)

32. mál, hafnargerð á Þórshöfn

*Finnur Jónsson:

Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, því að ég tel hæpið að heimila hvaða stað á landinu, sem kann að hafa löggilta höfn, að taka lestagjald af skipum, sem hafa kastað þar akkerum, án þess að tryggt sé, að þau geti notið þar hlunninda á nokkurn hátt. Ef þetta yrði almennt, gæti ríkissjóður t. d. ekki haldið uppi samgöngum innanlands, og gæti þetta yfirleitt orðið til þess, að samgöngur við þessar hafnir yrðu torveldaðar. Því hefi ég sett þennan fyrirvara, en greiði þó atkv. með frv. til 3. umr.