14.04.1937
Efri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í B-deild Alþingistíðinda. (975)

113. mál, hvalveiðar

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Út af fyrirspurn hv. 4. þm. Reykv. skal ég geta þess, að ég hefi nú fyrir skömmu heyrt sögusagnir — að vísu ekki frá mönnum búsettum þar vestra — um, að ekki væri fylgt fyrirmælum l. um eyðileggingu hvalleifa, svo að þær kæmu ekki að grandi. Ég hefi látið oddvita eða hreppstjóra í hlutaðeigandi hrepp vita um þetta, og vænti því að fá fljótlega upplýsingar um, hvernig þessu er varið. Ef þessi l. verða framlengd, er sjálfsagt, að ekki verði einungis sett ströng skilyrði um meðferð hvalleifanna, heldur verði einnig maður á staðnum látinn líta eftir þessu.