01.11.1937
Neðri deild: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)
56. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta
*Bergur Jónsson:
Af því að hv. frsm. sjútvn. er ekki viðstaddur, vil ég geta þess, að þetta frv. er nú í þriðja sinn lagt hér fyrir Alþ. samkv. beiðni hæstv. ríkisstj., og er það flutt eins og það var í upphafi, en nm. hafa áskilið sér rétt til þess að bera fram brtt. eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma.