01.11.1937
Neðri deild: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í B-deild Alþingistíðinda. (1082)
56. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta
*Bergur Jónsson:
Þar sem ég tók að mér framsögu í þessu máli, skal ég reyna að koma því til skila, að hæstv. fjvmrh. vilji tala við n.
Annars skal ég geta þess, að n. hefir fengið allmikið af umsögnum um frv., sem hún óskaði eftir, frá vátryggingarfélögum víðsvegar að af landinu, og er nú að vinna úr þeim. Og m. a. vegna þess, að í þessum umsögnum koma fram mjög skiptar skoðanir um það, hvort þetta frv. eigi að hafa framgang, þá hafa nm. áskilið sér — eins og ég tók fram áðan — að hafa óbundnar hendur um atkv. sitt viðvíkjandi einstökum gr. frv., og jafnvel frv. sjálfu, þótt n. hafi ekki viljað skorast undan beiðni hæstv. ríkisstj. um að flytja málið enn á ný inn í þingið.