23.11.1937
Neðri deild: 33. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í B-deild Alþingistíðinda. (1109)
56. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta
Ísleifur Högnason:
Ég hefi litlu við að bæta það, sem ég sagði við 2. umr. Ég vil aðeins taka fram, að það virðist vera skilningur hv. þm. Ísaf., að eignum félaganna gætu bátaábyrgðarfél. ráðstafað eftir eigin geðþótta, en í 10. gr. frv. er ákvæði um, að eignir fél. skuli ávaxta í ísl. bönkum eða sparisjóðum. Ég veit, að bátaábyrgðarfél. Vestmannaeyja hefir lánað fé til hafnargerðarinnar þar. Ef 10. gr. verður samþ., þá eru reistar skorður í l. við því, að hægt sé að nota fé til slíkra framfaramála í viðkomandi héraði. Ég vil því lýsa yfir því, að ég mun greiða atkv. á móti 10. gr. frv., en með till. hv. þm. Borgf.