13.12.1937
Efri deild: 48. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í B-deild Alþingistíðinda. (1123)
56. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta
*Jóhann Jósefsson:
Herra forseti! Í þessu frv. um vátryggingafélög fyrir vélbáta eru ýms ákvæði, sem orka tvímælis, og hefði ég kosið, að sjútvn. hefði lagt meiri vinnu í að athuga, hvort ekki væri hægt að færa ýms ákvæði frv. til betri vegar. Ég vonaðist eftir því, að málið yrði tekið fyrir til sameiginlegrar meðferðar, en það varð ekki. Síðan nál. var gefið út, hefir n. fengið ábendingar um ýms atriði, sem rétt væri að lagfæra í frv. Ég er sammála hv. frsm. um það, að sjálfsagt sé að koma betra skipulagi á vátryggingar skipa og báta. Hitt getur orkað tvímælis, hvort rétt væri að láta skylduvátrygginguna ná til allra farkosta, líka þeirra, sem aðeins eru notaðir stuttan tíma á árinu, en svo er um talsverðan hluta af þeim opnu bátum, sem frv. nær yfir. En þó að skylduvátrygging sé nauðsynleg á þeim stöðum, sem ekki hafa komið upp hjá sér neinum félagsskap um vátryggingu skipa og báta, þá er ekki hægt að segja, að skylduvátrygging sé eins óhjákvæmileg, þar sem allir vélbátar eru tryggðir í innlendu vátryggingarfélagi. Í hv. Nd. kom fram till. um, að þeir bátaeigendur, sem hefðu báta sína vátryggða hjá innlendum félögum, væru um nokkur ár undanþegnir skylduákvæðunum. Í frv. er ætlazt til, að Fiskifélag Íslands eigi að gangast fyrir stofnun þessara félaga og mundi það ærið starf að koma vátryggingarfélögum á stofn þar, sem engin félög eru fyrir.
Mitt kjördæmi hefir þá sérstöðu í þessum málum, að þar hefir starfað vátryggingarfélag síðan árið 1862, og verður það 76 ára 26. jan. næstkomandi, og hefir starfað óslitið allan þennan líma. Ég ætla ekki að fara hér langt út í sögu þessa félags, en hún er bæði löng og merkileg. Ég vil aðeins geta þess, að iðgjöld í félaginu á undanförnum árum hafa farið lækkandi, árið 1932 voru þau 4%, 1933 3,75%, 1934 3,75% og 1935 3,25%. Félagið á sér talsverða sjóði, og kemst vel af, og álít ég enga þörf á, að svo gamall og þrautreyndur félagsskapur sé keyrður inn í þennan nýja stakk, og vænti ég, að þessi hv. d. sýni meiri lipurð í afgreiðslu málsins en hv. Nd., og fallist á brtt. þá, sem ég hefi borið hér fram á þskj. 316. Þar er farið fram á, að þau vátryggingarfélög fyrir vélbáta, sem nú eru starfandi í landinu, og þeir vélabátaeigendur, sem nú hafa vátryggt báta sína í innlendu vátryggingarfélagi, séu undanþegnir skyldutryggingu samkvæmt lögum þessum um fimm ára skeið, og ennfremur séu eigendur opinna vélbáta undanþegnir skyldutryggingu á bátum sínum um jafnlangan tíma. Ég vil benda á, að þó slík undanþága sé veitt nú, er ekkert því til fyrirstöðu, að þessi félög geti gengið inn í heildarkerfið síðar. En ég sé enga ástæðu að ganga hart að þeim mönnum með skyldutryggingu, sem nú þegar hafa uppfyllt helztu ákvæðin, sem frv. fer fram á, að lögfest verði. Um opnu bátana er það að segja, að víðsvegar um land eru þessir opnu vélbátar, „trillurnar“, aðeins notaðir stuttan tíma. Ég tel því. að rétt væri að gefa nokkurn frest á því að taka opnu bátana undir skyldutrygginguna. Ég skal játa það, að ég legg aðaláherzluna á þessa brtt. vegna þess gamla félags í Vestmannaeyjum, og tel ekki nema sanngjarnt, að löggjafinn sýndi því þá viðurkenningu, að það þyrfti ekki að ganga inn í heildartrygginguna fyrr en eftir fimm ár, nema það óski þess sjálft.