30.10.1937
Efri deild: 15. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

2. mál, atvinna við siglingar

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Þetta frv. er eitt af bráðabirgðalögunum, sem liggja fyrir þinginu, og er hér með leitað á því staðfestingar. Nefndin hefir athugað frv. og er á einu máli um það, að rétt hafi verið að gefa lögin út og nauðsyn sé á því að þau standi framvegis. Þó hafa tveir nefndarmanna áskilið sér rétt til þess að bera fram brtt. við 3. umr. til viðauka.