21.12.1937
Efri deild: 54. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (1136)

56. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

*Frsm. (Ingvar Pálmason):

Við fyrri hluta þessarar umr. lágu fyrir brtt. frá hv. þm. Vestm. Eftir tilmælum frá mér var málið þá tekið af dagskrá, til þess að sjútvn. gæti athugað það nánar. Nú hefir n. athugað brtt., og hefir náðst samkomulag um, að n. gangi að miklu leyti inn á flestar þær brtt., sem hv. þm. Vestm. hefir borið fram á þskj. 360, og auk þess hefir hún borið fram nokkrar fleiri á þskj. 420. Um þetta eru allir nm. sammála. — En tvær brtt. — 4. og 5. — tekur n. aftur. Ég verð fyrst að segja frá því, að n. var alltaf hikandi, hvort hún ætti að bera þær fram. Það getur oft verið álitamál, af hverju vélskaði stafar, hvort það hefir ekki orðið af því, að skipið hafi t. d. lent á grynningum. En það er erfitt að setja ljós ákvæði um bætur í þeim tilfellum. Og í samráði við fróða menn hefir n. tekið tillögurnar aftur að sinni, en vill taka fram, að þarna er efni, sem þarf mikillar rannsóknar. N. varð sammála um þetta m. a. af því, að í 37. gr. frv. er svo komizt að orði:

„Í tilfellum, sem engin ákvæði eru sett um í lögum þessum, skal farið eftir reglum þeim og venjum, sem á hverjum tíma gilda um samskonar tilfelli hjá Samábyrgð Íslands á fiskiskipum“.

Þar sem þetta ákvæði verður í lögunum, er hættan lítil, þó að 4.–5. brtt. sé algerlega kippt burt. Skaðinn hlýtur samkv. þessu að fást bættur, eins og hjá Samábyrgðinni, ef það sannast, að báturinn hafi orðið fyrir áfalli. — En ef 4.–5. brtt. hefðu gengið fram, er hætt við, að þeir, sem vátryggingarfélögin endurtryggja hjá, hefðu rekið augun í þau ákvæði og talið, að þarna væri gengið inn á svið, sem væri sér óviðkomandi, sem sé að tryggja vélarnar.

Hinar brtt. hafa allar verið ræddar við þann mann, sem mestan þátt hefir átt í að semja frv. Og hann telur þær flestar til bóta, en enga til skemmda á frv. N. mælir með brtt., og a. m. k. meiri hl. sjútvn. í Nd. gerir það líka. — Ég vil sérstaklega minnast á brtt. við 15. gr., um að minnka frádrátt frá tjónbótum vegna fyrningar skipa. Einmitt þeir menn, sem hafa samið 15. gr., telja þessar brtt. til stórbóta á gr. Ég held, að allar brtt. n. séu hættulausar og ákaflega mikilsvert að fá sumar þeirra inn í frv. — Ég hefi áður lýst afstöðu minni til brtt. á þskj. 387, frá hv. þm. Vestm. og hirði ekki um að endurtaka ummæli mín.