22.11.1937
Efri deild: 32. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)
106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Flm. (Jónas Jónsson):
Eins og hv. deild er kunnugt, er óhjákvæmilegt að setja nokkra löggjöf nú á þessu þingi um síldarbræðslur ríkisins, því að lög um stjórn þeirra ganga úr gildi nú um áramótin, þannig að verksmiðjurnar hafa enga stjórn, nema Alþingi hafi áður séð fyrir henni. Nú hefir starfað að lausn þessa máls nefnd, kosin af öllum flokkum, og till. frá meiri hl. n. eru lagðar til gundvallar þessu frv. En þar sem breyta þurfi lögunum um þessi fyrirtæki hvort sem var, þótti rétt að semja og setja heildarlög um verksmiðjur og taka til athugunar ýms atriði, sem ekki hefir þótt sem heppilegast ráðið til lykta. En þar sem hér er mikið og merkilegt viðfangsefni, má að sjálfsögðu gera ráð fyrir, að hér muni koma fram till. til breyt. við frv., og að sumum, sem standa að þessu, þyki þær brtt. til bóta. Og það er kært flutningsmönnum, að allar uppástungur komi fram, sem gætu orðið til bóta.
Ég ætla ekki að fara út í einstök atriði við þessa umr., nema aðrir hv. þm. gefi sérstakt tilefni til þess.
Þegar Magnús heitinn Kristjánsson bar fyrst þessa hugmynd fram á Alþingi, að ríkið eignaðist síldarverksmiðjur á Siglufirði, þá var það fyrir honum þjóðræknismál og sjálfstæðismál alveg eins og fjárhagsmál. Hann var fyrst úgerðarmaður og kaupmaður, en varð mjög ákveðinn samvinnumaður, og hann átti þann þjóðlega metnað, að hann vildi ekki horfa upp á niðurlægingu landa sinna. Ár eftir ár sá hann íslenzku skipin koma til erlendu verksmiðjanna og sitja þar á hakanum fyrir erlendum skipum, bíða þangað til síldin kannske varð ónýt, og stundum voru Íslendingarnir hraktir frá. Og hvað eftir annað voru þeir beittir óþolandi ranglæti í vöruverði. Það voru þessar mörgu mannlegu ástæður, sem knúðu Magnús Kristjánsson til að stofna síldarbræðslur ríkisins. Þá var svo til ætlast, að það opinbera og Siglufjarðarbær styddu fyrirtækið til að komast á fót, en annars yrði það samvinnufyrirtæki íslenzkra sjómanna. Það átti að verða þeirra eigið samlag, þar sem þeir gætu komið með vöru sína í verksmiðjuna, látið vinna hana og átt svo síldarolíuna og mjölið sjálfir á eftir, eða andvirði þess, þegar sölu væri lokið. Hugmynd Magnúsar Kristjánssonar gekk fram, þó að það kostaði miklar deilur. Fyrsta verksmiðjan reyndist það vel, að tiltölulega fljótt var bætt við hana. Síðan var keypt verksmiðja á Siglufirði, því næst önnur vestur á fjörðum, þá verksmiðja á Austfjörðum o. s. frv. Og nú rignir yfir Alþingi beiðnum úr öllum landshlutum um margháttaða aðstoð til að koma upp verksmiðjum, eða helzt að ríkið reisi þær algerlega á sinn kostnað. Nú eru engar líkur til þess, að ríkið geti þetta. Og það er líka óvíst, hvort ásstæða er til þess. Það er mjög dregið í efa, hvort það sé þjóðhagsleg nauðsyn að byggja margar nýjar verksmiðjur, — a. m. k. á næstu mánuðum og missirum.
Framsýni Magnúsar Kristjánssonar í þessum málum kemur æ betur og betur í ljós. En í einu aðalatriði var hætt að fylgja stefnu Magnúsar Kristjánssonar. Það var farið að borga síldina við móttöku fullu áætlunarverði. Því var borið við, að upphaflega fyrirkomulagið kæmi útgerðarmönnum svo illa, þegar síldarverð var lágt, að það væri ekki hægt fyrir þá að gera út. Þeir yrðu að fá allt verðið strax. Og verksmiðjurnar tóku upp þá aðferðina með þeirri afleiðing, sem einn merkur þm. hefir hafi þau orð um, að síldarverksmiðjur ríkisins væru orðnar mestu „spekulations“ — fyrirtæki landsins. — Það er að sjálfsögðu ekki samið um samþykkt á þessu atriði í frv., fremur en öðrum, við neina aðilja hér á Alþingi, en að áliti mínu og annara flm. er hættan, sem stafar af núv. fyrirkomulagi svo mikil, að jafnvel þótt hv. Alþingi kannske breytti þessu frv. í þá átt að láta verksmiðjurnar halda áfram þessari „spekulation“, þá er það að líkindum ekki hægt. Því að bankarnir eru búnir að bíða svo mikið afhroð af þessum og svipuðum orsökum, sem valdið hafa töpunum hjá síldarbræðslunum, að ef hv. Alþingi sér ekki ástæðu til þess að kippa verksmiðjunum inn á þann upprunalega grundvöll, þá er ekki óhugsandi, að önnur hönd komi fram og kippi þeim þangað. Því að sannleikurinn er sá, að þessi fjárhagsmál eru farin að gripa svo inn í sjálfstæðismál þjóðarinnar, að enginn, sem hefir á hendi trúnaðarstöður í helztu fjármálastofnunum landsins, getur látið þau afskiptalaus. Það eru, eins og nú er, ægilegar horfur fyrir þjóðina, ef það vill til sama árið, að það bregðist bæði saltfiskurinn og síldin. Þá yrði óþægilega þröngt fyrir dyrum hjá fyrirtækjum og mörgum mönnum. — Þetta ákvæði frv., að ekki sé borgað út fyrirfram meira en það, sem reynast kann sannvirði síldarinnar, er því eitt stærsta „princip“-atriðið í breytingum þessa frumvarps.
Annað atriði, sem ég vil sérstaklega nefna, er, að allar meiri háttar breyt. á þessum fyrirtækjum verði að vera áður samþ. á Alþingi og fé heimilað til þeirra. Við vitum, að mikið af okkar vinnu og tíma hér á þinginu fer í að ákveða, hvort eyða skuli 5 þús. til þessa vegar eða hins, 18 þús. til þessarar brúar, eða leggja síma fyrir 2 þús. kr. En síldarverksmiðjur eru keyptar og þeim er breytt fyrir stórfé utan við vilja Alþingis, — t. d. á Siglufirði í sumar fyrir milljónarfjórðung. Það getur vei verið, að það mannvirki, sem þar var unnið, sé gott og nauðsynlegt, — það er umdeilt mál. En með þeirri peningameðferð, sem verið hefir á fé ríkisins siðan kreppan byrjaði, skýtur þetta skökku við, og mundu margir telja betur farið, að ráðstöfunin hefði verið borin undir Alþingi. Hér í frv. er tekið fram, að allt slíkt skuli lagt undir dóm Alþingis, enda ber það ábyrgðina á meðferð þess fjár hvort sem er. Þessi bæði atriði lúta að gætilegri fjármálastjórn fyrirtækjanna.
Þá er það, hver eigi að bera ábyrgð á rekstri þessara fyrirtækja. Það er lagt til hér, að hafa þetta nokkurskonar sjálfsrekstrarfyrirtæki. Þegar við erum búnir að byggja þetta upp með opinberum framlögum, þá afhendum við fyrirtækin í hendur þeirra, sem þau voru reist til hagsbóta fyrir, og setjum aðeins nauðsynleg ákvæði til að tryggja tilveru þeirra og að þær uppfylli hlutverk sitt. Það er engin ástæða til þess, að árlegur rekstur sé á ábyrgð ríkisins, heldur á hann að vera á ábyrgð þeirra, sem eiga framleiðslu verksmiðjanna, og þeirra, sem lána. Það er ekki ástæða til að efa, að verksmiðjurnar geti með skynsamlegri stjórn komizt vel af án ríkisábyrgðar. Þau tvö stórfyrirtæki, sem nú eiga stærstar síldarbræðslur, Alliance og Kveldúlfur, hafa fengið nægilegt rekstrarfé handa verksmiðjum sinum. Þó er vitað, að þau eiga í miklum erfiðleikum. Lánin eru miðuð við verksmiðjurnar, sem treysta má að beri sig, en ekki miðuð við það, að þessi efnalitlu fyrirtæki geti staðið undir þeim sjálf. En eins og þessi fyrirtæki virðast geta komizt af án ríkisábyrgðar, ættu síldarverksmiðjur ríkisins að geta það, og hafa gott af. Við verðum að gæta að því, að þá neyðast allir, sem stjórna verksmiðjunum, til þess að sýna ýtrustu varasemi og sparnað, því að þeim er veitt aðhald. Þetta eru milljónafyrirtæki, sem ríkið hafir aldrei átt að reka, þó að það hafi komið óvart. Það er á allra vitorði, að ef Magnús Kristjánsson hefði borið málið fram á þeim grundvelli, að verksmiðjurnar ættu alltaf að verða ríkiseign með ríkisábyrgð á rekstrinum, þá hefði það aldrei gengið fram á Alþingi. Og ég sé ekki meiri ástæðu til að þjóðnýta síldarverksmiðjurnar heldur en önnur samlagsfyrirtæki víðsvegar á landinu, — heldur en t. d. mjólkurvinnslustöðvar bænda. Ég vona sérstaklega, að þeir, sem þykjast tala máli útvegsmanna og allra, sem að síldveiðunum standa, haldi því ekki fram, að þeir standi á svo miklu lægra menningarstigi en sveitafólkið. að þess vegna sé ekki hægt að reka verksmiðjurnar öðruvísi en það sé ríkisrekstur.
Viðvíkjandi stjórn verksmiðjanna er lagt til í frv., að það verði 5 menn í stað 3, sem stundum hafa verið. Áður hafa þeir verið tilnefndir af ýmsum aðiljum, þar á meðal ríkisstjórn, en hér er gert ráð fyrir, að þeir séu kosnir hlutfallskosningu af Alþingi, og yrði þá stjórnn skipuð mönnum af öllum þingflokkum, sem hafa áhrif á þessi mál. Um það er ekkert hægt að segja fyrirfram, hvort valið á stj. heppnast betur þannig, heldur en ef ríkisstj., Siglufjarðarbær og aðrir aðiljar tilnefna mennina. Dómur um slíka nefnd fæst þá fyrst, þegar séð er, hvernig störf hennar reynast. Og það er sannast mála, að reynslan af verksmiðjustjórnun. um hingað til gefur fulla ástæðu til að breyta um valið. Fyrr og síðar hafa verið annmarkar á verksmiðjustjórninni og reipdráttur verið frá byrjun milli mannanna í stjórninni. Frá byrjun hefir því verið haldið fram, að þessi eða hinn þingflokkur vildi hafa flokkshagnað af því að eiga mann í verksmiðjustj. Það hefir, að minni hyggju, kannske aldrei sannazt á flokk, að hann vildi hafa þann hagnað, en orðrómur hefir um það gengið. En í heild séð hefir ástandið verið ósamboðið landinu og algerlega í ósamræmi við vilja Magnúsar Kristjánssonar.
Nú dettur mér ekki í hug, að þetta frv. tryggi það, að ekki verði ósamlyndi í þessari stjórn. En ég geri mér von um það, samt sem áður, að sú margra ára reynsla, sem fengin er, sé búin að sannfæra alla um það, að rifrildið borgi sig ekki fyrir neinn. Ég hygg því, að þeir þrír þingflokkar, sem eftir frv. fá fulltrúa í verksmiðjustj., muni vera búnir að sannfærast um, að bezt sé að taka þráðinn upp þar, sem byrjað var, og reka verksmiðjurnar alveg ópólitískt, láta sér ekki detta í hug, að neinn flokkur eigi að hafa af þeim sérhagsmunahagnað. A. m. k. get ég fullyrt, að við framsóknarmenn, sem stöndum bak við þetta frv., litum þannig á málið. (JBald: Eru ekki sjálfstæðismenn líka bak við það? Ég tala ekki fyrir annan flokk en Framsfl., þeir munn sjálfir gera grein fyrir afstöðu síns æruverða flokks. En ég furða mig á því, að svo virðulegur maður sem hæstv. forseti Sþ. skuli láta í ljós óánægju yfir því, að komið sé í veg fyrir, að stjórn síldarverksmiðjanna sé notuð með pólitíska og persónulega hagsmuni fyrir augum. Ég vil undirstrika það, að þetta mál er ekki og hefir ekki verið neitt pólitískt ávinningsmál fyrir Framsfl. Magnús heitinn Kristjánsson bar þetta fram sem almennt landsmál, og fyrir Framsfl. var það þá heldur tapmál heldur en gróðamál. Eini tilgangur okkar framsóknarmanna hefir verið og er að koma þessum rekstri sem hagkvæmlegast fyrir, þannig að enginn sérstakur flokkur geti haft af þeim pólitískan hagnað, heldur sé það aðeins atvinnuhagnaður fyrir landsmenn, sem borinn sé fyrir brjósti.
Það er ennfremur ein breyt. í þessu frv., sem gengur í sömu átt; hún er sú, að það eru miklu sterkari ákvæði í frv. en verið hefir um það, að verksmiðjustj. sé við verksmiðjurnar meðan þær starfa. Á þessu hefir viljað verða misbrestur, þannig að menn úr verksmiðjustj. hafa kannske verið langdvölum burtu um veiðitímann. Einnig tel ég það mjög til bóta, að a. m. k. 2 úr stjórninni er gert það að skilyrði, að þeir séu búsettir á verksmiðjustaðnum allt árið. Þetta er m. a. nauðsynlegt vegna ýmsra við- gerða á verksmiðjunum og þess háttar. Ennfremur er hér gerð breyt. frá því, sem verið hefir, í þá átt, að framkvæmdarstjórinn hafi meira að segja en verið hefir. Ég skal svo ekki fara nánar út í þetta að sinni, en óska þess, að málinu verði að lokinni umr. vísað til nefndar.