08.12.1937
Efri deild: 44. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (1200)

106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Frsm. 3. minni hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) :

Ég skil ekki, hvers vegna hv. 1. þm. Eyf. þykist hafa ástæðu til að þakka 2. minni hl., sem þó hefir gert efnisbreytingar á frv. hans. Annars gerði hann mestar aths. út af brtt. minni, sem varðar útsvör verksmiðjanna til Siglufjarðar. Hann sagðist ekki sjá neinn mun á einkarekstri og ríkisrekstri í þessum efnum. En síldarverksmiðjum hefir aldrei verið ætlað að vera gróðafyrirtæki, heldur verið meiningin, að hver aðili fengi sinn hlut óskertan. Þær eiga sjálfar ekki að hirða neinn gróða, nema þann hlut, sem nauðsynlegur er til rekstrarkostnaðar. Hér er dálitið ólíku saman að jafna, því að ef við t. d. tökum Reykjavík, þá er ekki svo litlu fé varið úr bæjarsjóði til þess að gera bæinn sem vistlegastan og til þess að skapa þægindi fyrir hvern einstakan mann. Það má telja upp margt, sem bæjarfélagið gerir íbúunum til þæginda og til þess að létta af þeim ýmsum. kvöðum, sem útsvörin koma beint og óbeint á móti. (BSt: Þetta á allt við um verksmiðjurnar). Nei, þar gegnir allt öðru máli. Um verksmiðjurnar er það að segja, að þær eru fyrst og fremst stofnsettar til þess að auka atvinnumöguleika landsmanna, og í öðru lagi til þess að skapa atvinnulíf í bæjunum, enda liggja nú fyrir þinginu fjölmargar beiðnir frá einstökum bæjum um að fá verksmiðjur. Get ég hv. d. til athugunar nefnt þessa staði. Það eru Vestmannaeyjar, Hrísey, Akureyri, Sauðárkrókur, Ingólfsfjörður, og Ólafsvík; um verksmiðjuaukningu er beðið á Siglufirði og Raufarhöfn. Grundvöllurinn undir þessum heiðnum er vitanlega fyrst og fremst sá, að skapa atvinnu á viðkomandi stöðum. Siglufjörður hefir í ríkustum mæli fengið þessar óskir sínur uppfylltar, og má hann það þakka legu sinni og aðstöðu. Hafa þar því skapazt stórkostlegir atvinnumöguleikar, enda var Siglfirðingum þetta fyllilega ljóst, þegar þeir fóru fram á verksmiðjuaukninguna, en svo koma þeir bara eftir á og heimta skatt af þessum fyrirtækjum, sem á engan hátt getur talizt réttmætt, eins og þegar hefir verið sýnt fram á með óyggjandi rökum. Og í þessu sambandi get ég bætt því við, sem ég gleymdi í mínni fyrri ræðu, er ég minntist á það, hversu ómetanlegt gagn bæjunum væri að verksmiðjunum, að einmitt þessi pláss, sem hafa hlotið það hnoss að fá verksmiðjur byggðar í sínu umdæmi, sitja fyrst og fremst fyrir með að veita sínum íbúum atvinnu, á sama tíma sem flest kauptún á landinu eru í stökustu vandræðum með að koma miklum fjölda af sinu fólki í atvinnu yfir sumartímann.

Þessi sami þm. (BSt) vildi meina það, að Rvík myndi víst nota sér af því, ef hún hefði einhverja síldarverksmiðju til þess að skattleggja. Það er nú ekki sjáanlegt, að í náinni framtíð muni rísa hér upp síldarverksmiðja, en ég býst við, að það myndi teljast mikið happ, ef hægt væri að veiða síld í nágrenni Rvík, og hefi ég ekki neina trú á því, að bærinn hefði þá neina tilhneigingu til þess að skattleggja sérstaklega slíka verksmiðju. Hann myndi leggja meira upp úr því happi að fá þar aukna atvinnu inn í bæinn.

Það er vitanlega rétt hjá hv. þm., að hingað koma afarmörg skip, en mér er ekki kunnugt um, að þau séu á neinn hátt skattlögð umfram það. sem alstaðar er gert, sem sé með hafnargjöldum. (BSt: En verzlunin?) Já, hér er rekin mikil verzlun. en ég veit ekki betur en að hún beri heldur lága skatta. Þá má og minnast á þið, að á vissum tíma árs vinna hér í Rvík mörg hundruð utanbæjarmanna, sem ekki borga hingað einn einasta eyri í skatt. Þetta má því teygja út í það endalausa, hvort eitt bæjarfélag líði meira tjón en. annað vegna aðstreymis fólksins. Og það er sama, hvernig þessu öllu er velt við, að engin rok er hægt að finna fyrir því, að réttmætt sé að leggja sérstakan skatt á fyrirtæki eins og ríkisverksmiðjurnar á þeim stöðum, sem þær eru settar upp.

Sami hv. þm. taldi það ekki fráleita till., sem ég skaut fram, að það ætti að takmarka útsvarsálagninguna, þar sem hún væri leyfð. En ég tel það ekki aðalatriðið, heldur hitt, að sett sé nokkurt samræmi í það, hvað verksmiðjurnar greiði, hvort sem það eru einkaverksmiðjur eða ríkisverksmiðjur, og sem komi öllum bæjarfélögum að notum. — Við skulum t. d. taka Hafnarfjörð, sem sendir mikið af sínu fólki á síldveiðar. Hann hefir engan slíkan rekstur til þess að skattleggja. En hví má ekki slíkt bæjarfélag eiga einhvern þátt í þeirri skattlagningu. sem kynni að koma í jöfnunarsjóð af svona rekstri, sem rekinn er fyrir atbeina ríkissjóðs? Menn sitja nú með sveittan skallann og reyna að grafa upp einhverja tekjustofna handa þeim bæjarfélögum, sem verst eru stæð. Hér er einn tekjustofn, sem um getur verið að ræða, í staðinn fyrir að láta einstöku bæjarfélög sitja að honum. — Ég held, að ég hafi þá svarað aðalatriðunum í ræðu hv. 1. þm. Eyf.

Hv. þm. Vestm. gerði grein fyrir sínum till., og get ég verið frekar fáorður um hans ræðu. Hann reyndi að rökstyðja þá till. sína að fella burtu 1. og 2. gr. frv. Hefir þessu þegar verið svarað af hæstv. atvmrh. En ég vil bara benda honum á það, að enda þótt eins og nú standa sakir sé mjög mikil keppni í mönnum um að reisa verksmiðjur, þá megum við ekki einblína á líðandi stund; við verðum líka að líta fram í tímann. Ég játa, að eins og nú er háttað um okkar atvinnuvegi, þá ber okkur að vissu marki að auka verksmiðjurnar. En nú er þó svo, að mögulegt er að vinna á dag um 26 þús. mál. í öllum verksmiðjum landsins, og ef við tökum 60 vinnudaga yfir sumarið, þá verða þetta 1½ millj. síldarmál. Þessu marki var náð í ár, en það hefir líka verið með betri árum hvað síldveiðarnar snertir. En til þess að skila síldinni að þessu marki í verksmiðjurnar, verða skipin, miðað við fjölda þeirra nú í sumar, að veiða um 10 þús. mál, og er það óvarlega áætlað að öllum jafnaði. (JJós: Fleiri skip og fleiri menn). Ég hygg, að í ár hafi nú verið nýttur allur sá skipakostur, sem hægt var að setja á flot, og þó að gert sé ráð fyrir einhverri aukningu á skipaflotanum, þá verður hún ekki meiri en að vega á móti þeirri aukningu verksmiðjanna, sem menn eru nú sammála um að gera. Eins og hv. þm. veit, þá er það skoðun okkar, að auka beri verksmiðjuna á Raufarhöfn, svo að hún geti unnið 2400 málum meira á sólarhring, og það er sumra skoðun, að auka megi á Siglufirði, þannig að vinnslan aukist um 2400 mál. Það þarf nokkur skip til þess að fylla upp þetta. Og þetta er náttúrlega gott og blessað á meðan síldarverðið er hátt, en á það hefir verið bent, að undir eins og síldarverðið lækkaði, þá er álitamál, hvað mikið stærri skipin verða látin ganga. Ég þykist að vísu vita, að smærri skipin verði látin ganga svo lengi sem fært þykir. Þetta er því ekki eins þýðingarlítið mál og hv. þm. vill vera láta að hafa einhverja takmörkun á því, hvað mikið megi reisa af verksmiðjum, et við eigum ekki að kollsteypa okkur, þegar lakari árin koma. — Hinsvegar vil ég að ríkið eigi forgangsrétt á að kaupa þær verksmiðjur, sem einstaklingar reka og kunna að vilja selja. Reynslan hefir sýnt oss, að þetta er svo þýðingarmikill rekstur fyrir þjóðina í heild, að ekki má sleppa fram af því taumunum, hvort verksmiðjurnar eru reknar eða ekki. Og eru þetta m. a. rök fyrir því. að ríkið hafi forgangsrétt að þeim verksmiðjum, sem einstaklingar vilja selja, en þetta vill hv. þm. fella niður.

Hv. þm. skaut því hér fram áðan, sem hæstv. atvmrh. heyrði ekki, að hæstv. ríkisstj. hefði stefnt að því að hefta byggingu síldarverksmiðja, og þykist ég vita, að hann hafi þar átt við verksmiðju Kveldúlfs á Hjalteyri. Hv. þm. veit það vel, að aldrei var neitað um byggingarleyfi fyrir þeirri verksmiðju, heldur var það bundið því skilyrði. að gerð væri grein fyrir því fjármagni sem til verksmiðjanna færi, en vegna þess að alllengi stóð á þeim sönnunargögnum, varð dráttur á leyfisveitingunni, og einnig vegna annars, sem þá var að gerast hér á Alþ. um sama leyti. (JJós: Já, var það ekki!) Það var vitanlega þýðingarlaust að veita fyrirtækinu leyfi á meðan ekki var útséð um það, hvort það ætti að gerast upp eða ekki.

Annars varð ég dálítið undrandi á þeirri skoðun, sem fram kom hjá hv. þm. um rekstur ríkisverksmiðjanna, því að ég hefi yfirleitt skoðað hann sem fulltrúa einkaframtaksins, en ekki samvinnunnar, en það var svo að skilja á honum, að samvinnufyrirkomulag á rekstri verksmiðjanna væri hið eina rétta, og er mér ekki grunlaust um, að bak við þessa herferð, sem fram kemur í frv. um síldarverksmiðjur ríkisins, liggi sú eina og ákveðna stefna að gera ríkisverksmiðjurnar lakari í samkeppninni við einkaverksmiðjurnar, m. ö. o. gera hlut einkaverksmiðjanna betri og skapa ótrú á ríkisverksmiðjunum, sem endi með því, að þær verði seldar einstaklingum, sem kynnu að vilja reka þær. Þetta er náttúrlega skiljanleg stefna af hálfu þeirra, sem eru fulltrúar einkaframtaksins, en mér þykir kasta tólfunum, þegar forvígismenn samvinnuhreyfingarinnar hér á landi vilja styðja þá stefnu.

Hv. þm. telur, að margir muni frekar vilja taka þá leiðina að koma síldinni til vinnslu í verksmiðjunum heldur en að fá ákveðið verð fyrir hana. Ég hygg nú samt, að þeir verði fáir, sem heldur vilja geyma einhvern hluta verðsins í verksmiðjunum en að fá verðið svo nærri því rétta sem unnt er. Ég hefi átt tal við marga um þetta, og allir hafa sömu sögu að segja, og er það m. a. af því, að hið eina ár, sem ríkisverksmiðjurnar borguðu 85%, fékkst aldrei neitt meira. Síðan hefir alltaf verið borgað fast og ákveðið verð, og í sumum tilfellum kannske verið ákveðið hærra en geta stóð til, til þess að tryggja það, að þessum atvinnurekstri væri haldið uppi í landinu. Og ég efast ekki um, þegar allt kemur til alls, að þjóðin í heild hafi grætt á því, enda þó ríkisverksmiðjurnar skiluðu ekki ágóða það árið. Enda er það ekki fyrst og fremst hlutverk ríkisverksmiðjanna að græða, heldur það, að halda uppi þessum atvinnurekstri jafnt í vondum árum sem góðum.

Við hv. minni hl. n., 2. þm. S.-M. hefi ég eiginlega lítið að segja. Ég hygg nú, að hans innsta hugsun sé ekki sú, að fylgja þessu máli fram óbreyttu, þó að ég vilji á engan hátt vera að túlka hjá honum aðra skoðun en þá, sem hann hefir látið uppi. Og ég er ennþá þeirrar skoðunar, að jafnvel í hans flokki séu allmargir menn, sem sjái það að sú stefna, sem í frv. felst, sé hættuleg fyrir rekstur síldarverksmiðjanna, hvað sem annað flýtur á yfirborðinu.

Þessi sami hv. þm. taldi, að engin rök mæltu með mínum brtt. En ég hygg, að þær séu í fyllsta samræmi við það, sem reynslan hefir ynt, að sé heppilegast, enda hefir enginn getað hrakið það; síður en svo.

Um þann skilning. sem leggja skal í mína brtt. við 9. gr., skal ég geta þess, að ég vil hafa heimildina til þess að kaupa síldina alveg skilyrðislausa. En í því tilfelli — sem einhver hv. þm. drap á —, að slík heimild sé ekki notuð, þá kveður 11. gr. alveg skýrt á um það, hvað þá skuli gera. Hér stangast því ekkert á hvað þetta snertir.

Ég vil þá að síðustu aðeins geta þess út af þeim tilmælum til mín um að taka brtt. við 5% fyrningargjaldið aftur til 3. umr., að það er útlátalítið fyrir mig. Þó skal ég aðeins vitna í það, að á þinginu 1935 var ekki ágreiningur um það að lækka fyrningargjaldið af vélum og áhöldum niður í 2%, og var það gert til þess, að draga frá því verði, sem útborgað yrði til þeirra, sem skipta við verksmiðjurnar. En ég skal reyna að kynna mér það, hvort óhæfilega er í sakirnar farið með því að áætla þetta gjald 3%, þó að það skipti kannske ekki miklu. (PZ: Það þarf að vera 8–10%). Ég ætla ekki að rengja það fyrr en ef ég sé, að það sé ekki rétt, en mér þykir mikið, ef þarf svo háa afskrift. Ég hefi áður gert grein fyrir brtt. mínum, og sömuleiðis hefir hæstv. atvmrh. gert þeim mjög góð skil, ég fjölyrði því ekki um þær að þessu sinni, en ég vænti þess, þegar um svo þýðingarmikið mál er að ræða sem framtíð síldarverksmiðjanna, að þá gái hv. þdm. vel að því, hvert nú er stefnt. Þessar verksmiðjur voru stofnaðar og hafa verið reknar með það markmið fyrir augum, að þær yrðu öllum landslýð til heilla og tryggja það, að hver og einn fengi það, sem honum ber með réttu.