11.12.1937
Efri deild: 47. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)
106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég kvaddi mér hljóðs í gær í tilefni af því, að hv. þm. S.-Þ. hafði hér ýmis ummæli, sem ég taldi ekki rétt, að væri ómótmælt. Nú sé ég, að þessi hv. þm. er ekki hér í d., og þá þykir mér ekki ómaksvert að fást við að hrekja orð hans á meðan. Ég hefði óskað að eiga tal við hann í d. og svara ýmsu, sem hann flutti hér. Ég skal játa, að hæstv. ráðh. tók margt af því, sem hann sagði, og hrakti það með fullum rökum, og við þau atriði þarf ég ekki að bæta. Og féll ég því frá orðinu af þeirri einu í stæðu, að viðkomandi þm. er ekki hér til að hlusta á mál mitt. (BSn: Á það ekki að koma í þingtíðindunum samt? — ÁJ: Það kemur, að hann féll frá orðinu. — BSn: Það má taka til máls seinna).