21.12.1937
Neðri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (1230)
106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Sigurður E. Hlíðar:
Ég kvaddi mér hljóðs á meðan hv. frsm. minni hl. var að tala, því að ég saknaði hv. frsm. meiri hl. En hann er nú kominn, svo að það er í rauninni óþarfi, að ég taki til máls. En fyrst ég var búinn að kveðja mér hljóðs, mun ég segja nokkur orð um þetta mál.
Hv. þm. hafa nú heyrt framsöguræðu hv. formanns n. Hún var harla einkennileg, stóð yfir í rúman klukkutíma, og aðalinntak hennar voru þessi ferlegu orð, sem skráð voru gullnu letri í fyrndinni: mene, mene, tekel ufarsin. Og þar undir stóð skrifað nafnið Þormóður Eyjólfsson. En ég vil spyrja, hvað Þormóður Eyjólf,son kemur þessu máli við. Erum við ekki að ræða hér um frv. til I. um síldarverksmiðjur ríkisins? Ásakanir hv. form. n. í garð Þormóðs Eyjólfssonar koma þessu máli ekkert við.
Í ræðum þeirra hv. þm. Ísaf. og hv. 5. þm. Reykv. kom fram furðuleg hræðsla við að breyta fyrirkomulaginu á stj. verksmiðjanna. Þeir virtust óttast eins og heitan eldinn, að það yrði að l., að verksmiðjustj. yrði skipuð 5 mönnum Ég veit nú ekki betur en að verksmiðjustj. væri í upphafi skipuð 5 mönnum, þegar verksmiðjurnar voru stofnaðar, og stjórnarflokkarnir hafa enn, eins og þá, aðstöðu til að ná þar meiri hl. Það er að vísu ekki eins innileg samvinna með þeim nú sem þá, og ég get hugsað mér, að alþýðuflokksmenn myndu ekki láta sér lynda, að Þormóður Eyjólfsson vari gerður að formanni verksmiðjustj. En skyldi annars vera ástæða til að halda, að hinir tveir framsóknarmenn í stj. myndu ekki kasta augum sínum á Finn Jónsson, eins og áður? Annars er þetta þeirra innanflokksmál. Og ég myndi ekki gráta það, þó að menn sæju „mene tekei“ á veggnum yfir samvinnu stjórnarflokkanna.
Þá kom hv. frsm. inn á aðalkjarna málsins, aðfinnslur sínar við frv. og brtt. á þskj. 431. Finnur hann frv. aðallega það til foráttu, að það geri ráð fyrir 5 manna stj., þar sem hann vill hafa 3 menn. Hann vili einnig hafa 3 manna varastj., en við það get ég ekki fellt mig. Ég er ekkert hrifinn af því, að þingflokkarnir séu að skipta með sér völdunum í svona málum. Þó vil ég ekki vera að fetta fingur út í þetta sérstaklega að þessu sinni. En hitt tel en tvímælalaust heppilegra, að í stj. sé 5 menn en 3, þó að það verði nokkru dýrara. Varamenn kunni er ég mótfallinn og sé ekki nema ókosti þar á. Það fyrirkomulag leiðir ekki til annars en óþæginda og öryggisleysis, en verður til þess, að aðalmenn draga sig í hlé að ástæðulausu um fundarsókn, en af því geta aftur orðið mjög óheppilegar afleiðingar, eins og það, sem oft hefir komið fyrir, að varamenn greiða atkv. þvert á móti því, sem aðalmenn höfðu áður samþykkt.
Hv. þm., frsm. minni hl., færði það fram sem rök á móti 5 manna stj., að örðugt myndi að ná henni saman. Það mun að vísu yfirleitt vera verra að ná saman 3 mönnum en 3, en samt getur þetta líka orðið nógu erfitt, þó að mennirnir séu ekki nema 3. Og í frv. er líka ákvæði um, að ekki skuli þurfa nema 3 stjórnarmenn til að undirrita mikilsverða samninga, og er þar með séð við þeim óþægindum, sem af þessari fjölgun kynni að leiða.
Þá er 7. gr. frv. Mótbárum þeim, sem fram hafa komið gegn henni, hefir verið svarað. Nú þegar eru verksmiðjurnar reknir með nokkuð öðrum hætti en áður, meira í ætt við samvinnurekstur, og er það öryggisráðstöfun, sem gerir að verkum, að ríkisábyrgð þarf ekki eins að koma til greina, þar sem ætlazt er til, að verksmiðjurnar geti fremur staðið undir sér sjálfar.
Um brtt. hv. frsm. minni hl. við 11. gr. frv. ætla ég ekki að deila við hann. Um ákvæði 12. gr. frv., þar sem segir, að hámarksverð á síldarmjöli til samvinnufélaga, bæjarfélaga, hreppsfélaga og búnaðarfélaga skuli ákveðast með hliðsjón af kostnaðarverði og markaðsverði, er það að segja, að ég tel þetta ákvæði ekki eins hættulegt og hv. þm. Það er að vísu ekki hægt að ákveða kostnaðarverð og markaðsverð fyrirfram, en hér er ekki heldur um það að ræða að ákveða þetta verð fyrirfram, heldur um það, að taka hliðsjón af því.
Þá er 14. gr. hv. þm. mikill ásteytingarsteinn, en hér segir, að bæjarfélög, þar sem verksmiðjurnar hafa bækistöð sína, skuli fá af þeim ákveðið hundraðsgjald seldra afurða ár hvert. Þessi krafa mun aðallega vera komin frá Siglufirði. Mér þykir nú ekki ósanngjarnt, að Siglufjörður t. d. fái nokkurt gjald af þessum stóru fyrirtækjum. Siglfirðingar fóru fram á 1%, hv. Ed. færði það niður í ½%, og nú kemur hv. frsm. minni hl. og vill færa það niður í ¼%. Ég get nú ekki séð, að þessu gjaldi fylgi nokkur hætta fyrir verksmiðjurnar, eða að það rýri til muna aðstöðu þeirra, samanborið við aðrar síldarverksmiðjur. Þær greiða ekki útsvar, né tekju- og eignarskatt, en það gera allar aðrar verksmiðjur.
Mun ég svo láta útrætt um þetta mál, enda var það ekki tilgangur minn að taka fram fyrir hendurnar á hv. frsm. meiri hl., heldur aðeins að hlaupa í skarðið fyrir hann.