21.12.1937
Neðri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (1235)
106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):
Ég get ekki neitað því, að ég varð fyrir vonbrigðum út af hæstv. forseta, sem annars er vanur að vera óhlutdrægur í úrskurðum sínum, en nú hefir frsm. meiri hl. sjútvn. ekki haldið neina ræðu í þessu máli fyrr en nú, og þá er ræðutími takmarkaður við 10 mínútur. Ég sé ekki ástæðu til, að meðferð mála velti á því, að nokkra hv. þm. langar heim til sín fyrir jólin; hitt er meira virði, að málin fái þá meðferð, að hæstv. Alþ. geti við það unað. Ég vona, að hæstv. forseti sjái, að það er ekki sæmilegt að takmarka tíma frsm. þannig, að þeir geti ekki svarað brtt., sem fram koma, eða gert grein fyrir afstöðu meiri hl. n. til málsins.
Eins og sjá má á þskj. 410, hefir meiri hl. sjútvn. mælt með, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, en 2 þm., ég og hv. þm. Ak., hafa lagt til, að frv. yrði samþ. eins og það kom frá Ed., þar sem gengið hefir verið frá málinu eftir meiri en mánaðar umr., og 2 nm. hafa áskilið sér rétt til að bera fram brtt. Ég býst tæplega við, að þeir geri það, og mun skoðun meiri hl. vera sú rétta, að láta frv. ganga óbreyt. Munn þeir ekki leggja stein í götu þess, enda mun sýnt, að mönnum gefst tæplega tími til að ræða þetta eða önnur þingmál.
Hv. þm. Ísaf. hefir borið fram brtt. á þskj. 431. Fyrsta atriði brtt. snertir ákvæði frv. um, hvernig stjórn síldarverksmiðjanna skuli skipuð. Í stað þess, að í frv. er gert ráð fyrir, að stjórnin verði skipuð í samræmi við þingmannafjölda stjórnmálaflokkanna hér á Alþ., vill hv. þm. Ísaf. láta skipa þá að fenginni tilnefningu 3 stærstu stjórnmálaflokkanna. Ég ætla ekki að fara langt út í þetta atriði; það hefir sýnt sig af blaðaskrifum þessa hv. þm., sem hann hefir hrapað út í síðustu dagana, að aðalatriðið, sem fyrir honum vakir með þessu frv., er það að stjórn síldarverksmiðjanna standi óbreytt. Ég minntist á það við 1. umr., að þetta mundi vera tilgangur hans, og nú er það greinilega komið í ljós, að svo er. Ég vil ekki gera lítið úr starfi þessa hv. þm., hvorki í stjórn síldarverksmiðjanna eða annarsstaðar; ég veit, að hann er duglegur maður og hefir aflað sér allmikillar þekkingar á þessu starfi, sem hann hefir með höndum sem formaður verksmiðjustj., en hv. þm. verður að athuga það, að það eru til aðrir menn í landinu, sem hafa eins mikla þekkingu á því og hann.
Aðalatriðið í þessu frv. er breyt. á stjórn síldarverksmiðjanna, og þar er farið fram á, að stærstu þingflokkar landsins fái aðstöðu til að fá hlutfallslega þá hlutdeild í stjórn verksmiðjanna, sem er í samræmi við þingmannatölu þeirra, og er engin ástæða til að ætla, að af því hljótist neitt ranglæti. Ég vil benda hv. 3. þm. Reykv. og hv. þm. Ísaf. á, að ekkert réttlæti er í þeirri kröfu Alþfl., að hann einn eigi að geta ráðið öllum framkvæmdum í síldarverksmiðjum ríkisins, en það hefir hann gert hingað til, og vil ég þó ekki með þeim ummælum kasta neinum steini á Þórarinn Egilsson, sem er í stjórninni með hv. þm. Ísaf. Ég veit ekki betur en að hann hafi verið meðmælandi i. landsk., fyrrv. þm. Hafn., Emils Jónssonar, og hefir hann með því sýnt, að hann er Alþfl.maður, svo að meiri hl. stjórnarinnar er hreinir Alþfl.-menn, enda mun það sjást, ef farið er gegnum gerðabækur stjórnarinnar, að ekki hefir verið mikill ágreiningur milli þessa manns og hv. þm. Ísaf. Ég er ekki með þessu að segja, að stjórn verksmiðjanna sé í slæmum höndum hjá hv. þm. Ísaf. og Þórarni Egilssyni, en ég álít það ekki rétt hjá hv. þm. Ísaf., að meiri vinnufriður muni fást í stjórninni, ef þar eru tveir menn af sama stjórnmálaflokki en þótt þar væru menn af öllum flokkum, en það skapar ólíkt meiri tortryggni út á við og minni frið viðvíkjandi blaðaskrifum og öðrum opinberum ádeilum, ef einn flokkur fær að ráða þar öllu. Því hygg ég það óviturlegt af hv. þm. Ísaf. að sækjast eftir, að stjórn síldarverksmiðjanna heyri undir einn sérstakan flokk.
Næsta brtt. minni hl. er um það, að endurskoðendur verksmiðjanna séu aðeins 2. Mér þætti gaman, ef hv. þm. vildi gera grein fyrir, hvað liggur á bak við þessa till. Af hverju mega endurskoðendurnir ekki vera 3, einn frá hverjum stærstu stjórnmálaflokkunum?
Þá er till. um, að ríkissjóður losni undan ábyrgð fyrir skuldum, sem stofnað hefir verið til eftir 31. des. 1937. Hv. þm. heldur því fram, að afnám ábyrgðarinnar muni veikja lánstraust verksmiðjanna. Í því sambandi vil ég benda hv. þm. á, að þessar verksmiðjur eru stofnaðar af ríkinu, og ef hv. 3. þm. Reykv. væri hér viðstaddur, myndi ég benda honum á, að það voru ekki Alþfl.menn, sem stofnuðu þær, heldur framsóknarmenn. Ef til þess kemur, að verksmiðjurnar verða að taka lán og heimta til þess ríkisábyrgð, þá verður þeim varla neitað um hana. Því álít ég ástæðulaust að samþ. 3. brtt. þessa hv. minni hl.
Um 4. brtt. er ekki ástæða til að vera langorður. Það er aldrei til skaða að reikna fyrningargjöld aðeins hærri en alveg er sjálfsagt að gera; það miðar aðeins að því að gera fyrirtækin öruggari.
5. brtt. sé ég ekki ástæðu til að samþ. Í frv. er aðeins sagt, að hafa skuli hliðsjón af kostnaðarverði og markaðsverði, og ég hefi gaman af að heyra rök hv. þm. fyrir því, hvers vegna ekki má taka tillit til þess. Hv. þm. veit vel, að það verður ekki það eingöngu, sem ræður verðinu til kaupenda.
Þá er till. um að lækka tillag ríkisverksmiðjanna til jöfnunarsjóðs. Ég gæti verið þessari till. samþykkur, en sé ekki ástæðu til að tefja málið með því. Hinsvegar nær það engri átt að fara að fella niður 25% takmarkið um útsvarsgreiðslur til þeirra bæjar- eða hreppsfélaga, þar sem ríkið hefir verksmiðjur sínar.
Hv. þm. Ísaf. og hv. 3. þm. Reykv. hafa gert mikið veður út af því, að í frv. er gengið út frá því, að eftir sé að greiða 2 ára afborgun af dr. Pauls verksmiðjunni, og segja, að það sé aðelns eftir að greiða eins árs afborgun. Hv. þm. Ísaf. veit vel, að öll löggjöf byggist að miklu leyti á því, að ekki er hægt með l. að skapa mönnum kröfur, sem þeir hafa ekki rétt til.