21.12.1937
Neðri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)

106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Ísleifur Högnason:

Ég minntist nokkuð á þetta frv. við útvarpsumr. um daginn, en vil nú koma nánar inn á það, þótt tími sé naumur.

Samkv. skoðun hæstv. forsrh. á að reka þetta ríkisfyrirtæki með nokkurskonar samvinnusniði, og mælti hann á móti því, að meiningin væri að láta fyrirtækið hagnast á sjómönnum og útvegsmönnum. En frv. sannar þó, að tilgangurinn er að safna gróða í fjárhirzlu ríkisins og gefa öðrum samskonar fyrirtækjum í landinu tækifæri til að hagnast á síldarkaupum. Menn eiga því ekki að venjast að fá endurgreitt það, sem þeir hafa ofborgað í ríkissjóð, og ég veit ekki til, að rekstrarafgangurinn í ríkissjóði hafi verið svo hár, að menn fengju endurgreidda þaðan tolla og skatta. Eitt er víst, að útvegsmenn munu ekki skoða síldarverksmiðjur ríkisins sem samvinnufyrirtæki, þar sem þeir hafa engin ráð í stjórn þeirra.

Það er einkennilegt við þetta frv. eins og það var lagt fram í hv. Ed., að það var engin grein gerð fyrir tilgangi þess, enda kemur það heim við ræður þeirra hv. þm., sem um málið hafa rætt, að tilgangur þess sé harla lítill. Hv. þm. Barð. gat ekkert deilt á stjórn verksmiðjanna, en gat þess aðeins, að til mundu vera menn hér á landi, sem væru eins færir til að fara með völd þar. Hv. flm. gat ekki fært nein rök fyrir því, að síldarverðið þyrfti að lækka, og gat ekki sýnt fram á, að síldarverksmiðjunum hefði verið stefnt í voða með því að greiða of hátt síldarverð. Hv. frsm. meiri hl. n. kom með fyrirspurn til hv. þm. Ísaf., Finns Jónssonar, hversvegna hann væri á móti breyttu fyrirkomulagi á kosningu í verksmiðjustjórn, en engin grg. kom fram fyrir því, hvers vegna þessi breyt. væri nauðsynleg. Sama hefir verið með það, hvers vegna endurskoðendur ættu að vera 3 í stað 2. En því hefir verið fleygt hér, að þetta mál muni eiga að verða sá fleygur, sem kljúfi samvinnu stjórnarflokkanna. Hefir Framsfl. þá yfirgefið sitt stefnumál, sem er að bera klæði á vopn manna, en eys í þess stað olíu á eldinn. Ég sé ekki, að annað sé fyrir Alþfl.menn að gera í þessu máli en að reyna, hvað þeir geta til þess að hefta framgang þess, eða svo var að heyra á ræðu hv. 3. þm. Reykv., enda er þarna verið að lögfesta ákvæði, sem hlýtur að verða nýr og þungur skattur á sjómenn og útgerðarmenn í landinu, sem ekki var tekinn inn í samninga þeirra við verksmiðjurnar, þegar þeir voru gerðir fyrir tæpum 2 mánuðum. Alþfl. verður að gera einhverja sterka ráðstöfun til, að frv. nái ekki fram að ganga, og ég vil spyrja hv. form. flokksins, hvort ekki sé eitthvert það atriði í samningum þeirra við Framsfl., sem þeir geti látið mæta þessu frv., svo framgangur þess heftist. Ég vil t. d. benda á, að frv. um bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs á eftir að koma til 3. umr., og það er svo stór tekjuöflunarliður, sem þar um ræðir, að mér finnst, að hljóti að vera að tefla því á móti þessu frv., sem hlýtur að orsaka stóra tekjurýrnun hjá sjómönnum og útgerðarmönnum. Ég er forviða á Alþfl., et hann lætur bjóða sér annað eins og þetta.

Ég vil taka það frsm, að ég er ekki mótfallinn 12.–13. gr. frv. Ég álít réttmætt, að greiddur sé skattur til þeirra bæjarfélaga, þar sem verksmiðjurnar eru reknar. og sömuleiðis að ½ eða 1% af andvirði seldra afurða skuli þannig varið.

Ég ætla ekki að bera fram neina brtt., en ég vil lýsa mig frv. andvígan í öllum aðalatriðum.