21.12.1937
Neðri deild: 58. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (1265)
106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Gísli Guðmundsson:
Ég skal ekki koma inn á almennar umræður um þetta mál. En svo sem sjá má á nál. hv. meiri hl. sjútvn., hefi ég áskilið mér rétt til að bera fram brtt. við 3. umr. Ég hafði í huga að bera fram brtt. við 14. gr. Í þessari grein er ákveðið, að síldarverksmiðjur ríkisins greiði víst gjald af brúttó framleiðslutekjum verksmiðjanna í bæjar- eða sveitarsjóð viðkomandi staðar, og var gert ráð fyrir, að þetta gjald yrði 1% af tekjunum. En í meðferð hv. Ed. var þessu breytt í ½%, og tel ég, að ekki hafi staðið full rök að þeirri breytingu. Það var ennfremur sett inn ákvæði um, að þetta gjald mætti ekki nema meiru en 25% af útsvörum viðkomandi bæjar- eða sveitarfélags. Þetta kemur sýnilega illa við þau sveitarfélög, sem fámennust eru. Að baki þessu liggur samskonar hugsun og ef sveitarfélögum væri bannað að leggja á sem útsvör nema vissan hundraðshluta af því, sem jafnað hefir verið niður. Slíkur hugsunarháttur nær ekki nokkurri átt.
Ég hefi ekki ætlað mér að standa í vegi þessa frv. og tel rétt, að það nái fram að ganga, og mun ég því falla frá að flytja þessa brtt. nú, í því trausti, að réttlát breyt. fáist á þessu atriði á næsta þingi. Nú er orðið svo áliðið þings, að ekki vinnst tími til að vinna að breyt. á frv., og hefi ég því lagt til, ásamt þremur samnm. mínum, að frv. verði samþ. eins og það nú liggur fyrir. En afstöðu mína til frv. ber ekki að skilja svo, að í henni felist vantraust á þá stjórn, sem undanfarið hefir verið í verksmiðjunum, eða form. þeirrar stjórnar. Fyrir mér er hér um princip-mál að ræða, en ekki afstöðu til einstakra manna.