22.10.1937
Efri deild: 8. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)
27. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
*Jón Baldvinsson:
Ég vil geta um eitt atriði, sem felst í frv., sem sé það, að ætlazt er til, að fé til verksmiðjubyggingarinnar verði tekið að láni. Það er auðsætt, að nokkurn tíma þarf til að athuga það. Sjálfstæðismenn lýsa nú svo fjárhag þjóðarinnar, að undarlegt verður að teljast, að þeir skuli nú leggja til, að landið taki 1½ millj. kr. lán til þess. (MG: Það yrði gert til að græða á því). En þeir leggja mikla áherzlu á það, að lánstraust landsins sé þrotið og að ekki sé á skuldirnar bætandi. Frá þeirra sjónarmiði hlýtur því þetta að þurfa nánari athugunar við. Hér getur varla verið um annað að ræða en erlent lán, svo að þetta atriði er mikilsvert. En þessi afstaða þeirra. sýnir það, sem hægt var að láta sig gruna, að þeim sýndist landið standa sig betur en þeir vilja annars láta uppi. Þeir telja landið geta fengið rífleg lán, enda þótt þeir láti jafnan í veðri vaka, að landið sé peningalaust og að öllu hafi verið siglt í strand. Mér skilst á öðrum frv., er hv. sjálfstæðismenn hafa nú lagt fyrir þingið, að þar sé farið fram á svo stórar fjárhæðir til útgjalda, að þeim hljóti að finnast sem af nógu sé að taka.
Ég skal játa, að nú eru erfiðir tímar, þó að ég vilji ekki mála ástandið eins svart og þeir eru vanir að gera. En þó að ekki sé eins illt í efni og þessir menn segja, þá er þetta atriði, sem ég minntist á, samt sem áður mikilsvert. og er því ekki hægt að koma málinu fram með einfaldri samþykkt, heldur þarf það langs undirbúnings og nákvæmar athugunar. Ég ætlast ekki til eilífra bollalegginga um málið. Það er hægt að athuga tiltölulega fljótt, hvar hentugast er að reisa verksmiðju. En ég bendi aðeins á það, að fyrir land, sem er í erfiðleikum, þótt þeir séu ekki eins alvarlegir og hv. sjálfstæðismenn vilja vera láta, er 1½ millj. kr. mikið fé. Þar sem sjálfstæðismenn hafa farið með völd, bæði hjá bæjum og ríki, hefir það oft tekið mörg ár fyrir þeim að taka lán til stórra fyrirfækja, eins og t. d. Sogsvirkjunarinnar, sem þeir voru seinir að ganga inn á, þótt þeir yrðu með í því máli að síðustu. Þar áttu þeir að vera með í að útvega fé, en það gekk illa. Ég sé að hv. þm. (MG) brosir svo blítt til mín, að ég verð að minna hann á árið 1929, er hann tók stóra lánið. Það gekk líka illa. (MG: Það gekk a. m. k. fljótt). Í augum hv. sjálfstæðismanna ætti það að vera óyfirstíganlegur örðugleiki að fá þetta lán.
Þetta, sem ég hefi sagt, er ekki til þess ætlað að tefja málið. En það, sem gert verður, verður að gera án flans eða flausturs.