22.10.1937
Efri deild: 8. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (1281)

27. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.

Bernharð Stefánsson:

Ég sé ekki ástæðu til að taka undir með hv. 10. landsk. og láta fögnuð minn í ljós yfir því, að tveir menn bætist í hóp þeirra manna, sem telja þjóðnýtingu atvinnufyrirtækja heppilegasta. En aftur á móti vildi ég taka undir það, að þetta mál væri athugað sem bezt, sérstaklega með tilliti til þeirra möguleika, sem á því eru að koma upp síldarverksmiðjum án þess að ríkið geri það og þurfi að binda fé þannig eða taka lán.

Mér er fullkunnugt um það, eins og hér hefir komið fram, að það eru ýmsir einstaklingar og félög einstaklinga, sem nú hyggja til þess að koma upp síldarverksmiðjum. Hv. þm. Hafnf. gat þess, að sér væri kunnugt um þetta, en sagði, að þetta mundu vera smástöðvar og þess vegna væri þetta mál eins nauðsynlegt fyrir því.

Ég býst við, að þessar síldarbræðslustöðvar, sem ýmsir einstaklingar hafa nú hug á að koma upp, séu sérstaklega ætlaðar til þess, eins og hann nefndi, bæði að gera síldarsöltun tryggari á þessum stöðum og líka til þess að gera smáútvegsmönnum hægara um vík við að losna við síld sína, og þess vegna muni þessar bræðslustöðvar ekki að öllu leyti hafa sama hlutverk og hér er hugsað til. En ég geri ráð fyrir, að komist ein eða fleiri slíkar smástöðvar á fót, þá hljóta þær að létta mikið á bræðslustöðvum ríkisins, og þar af leiðir, að það verður minni þörf á að ráðast í þessar framkvæmdir á Raufarhöfn. Ég er ekki að mæla á móti þessu frv.. en þar sem ég veit, að það liggja fyrir margar umsóknir frá einstaklingum um að fá að reisa síldarbræðslustöðvar, finnst mér ekki rétt, að ríkið hrapi að því að ráðast í þessar framkvæmdir á Raufarhöfn, heldur sé það athugað gaumgæfilega, hvort ekki beri frekar að styðja viðleitni einstaklinganna. Og ég vildi vænta þess, að sjútvn., sem fær þetta mál til meðferðar, athugi allar hlíðar þess, áður en hún tekur sína ákvörðun.

Það er talað um lántökur í þessu skyni, og þetta mál er flutt af tveimur hv. stjórnarandstæðingum, en ég býst samt við, verði þetta frv. samþ. og lán tekið, að bæði í blöðum sjálfstæðismanna og ræðum þeirra á þingmálafundum muni þetta lán verða talið í flokki þeirra lána, sem tekin hafa verið af núv. ríkisstj. Það hafa fyrr verið tekin lán að ráðum þessa flokks og hann hefir samt sem áður talið þau til skuldasöfnunar stj., og svo mun verða með þetta.

Ég lít svo á fyrir mitt leyti, þó að ég hafi stundum stutt ríkisrekstur, að það sé æskilegra, ef unnt er að fullnægja sömu þörfum með framtaki einstaklingsins heldur en með aðgerðum ríkisins.

Þegar ríkisbræðslustöðvarnar á Siglufirði voru settar á stofn, stóð svo á, að verksmiðjur vantaði og einstaklingar höfðu ekki tök á að koma þeim upp. Þá voru allir sammála um það, að ríkið yrði að koma upp verksmiðjum En nú er öðru máli að gegna. Nú virðist vera til fjármagn í landinu, sem menn vilja fúslega leggja í þessar bræðslustöðvar. Þess vegna álít ég, og vil taka undir það með hv. 10. landsk., að nauðsyn beri til að athuga þetta mál sem bezt.

Það kann að vera, að það sé mikil röksemi fyrir þessu máli, sem hv. fyrri flm. fjölyrti mjög um, að staðhættir fyrir nýja síldarverksmiðju séu einmitt sérlega heppilegir á Raufarhöfn. Mig skortir kunnugleika til að dæma um þetta, en mér virðist, að undanfarin sumur hafi síldin verið allóstöðug og stundum veiðzt austur í Þistilfirði og stundum aftur í Húnaflóa. Það er því næst að ætla, að það geti komið sumar, þegar Raufarhöfn er ekki betri staður en hver annar. En eitt er vist, að Siglufjörður og Eyjafjörður liggja um miðbik þess svæðis, þar sem um síld er að ræða, og þess vegna er eðlilegt að hafa aðalsíldarbræðslustöðvarnar þar. Nú veit ég, að það munu koma fram beiðnir um það til þingsins, að greitt verði lítilsháttar fyrir nýrri verksmiðju, sem einstaklingar hafa í hyggju að koma upp einmitt um miðbik síldveiðisvæðisins. Þetta er náttúrlega ekkert aðalatriði í þessu máli, en ég sagði þetta út af því, að ég er ekki sannfærður um, að það sé sjálfsagt að auka síldarbræðsluna á Raufarhöfn. Hitt er aðalatriðið, að sú síld, sem aflast, geti orðið hagnýt vara.