09.12.1937
Efri deild: 45. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)
27. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
*Ingvar Pálmason:
Ég hefi ekki að öllu leyti getað orðið samferða meðnm. mínum í þessu máli, og liggja til þess ýmsar orsakir, sem nú skal greina. Aðalástæðan fyrir því, að ég get ekki orðið þeim samferða, er sú, að fyrir sjútvn. liggja nú margar beiðnir og kröfur um stækkun síldarverksmiðja, en n. hefir ekki séð ástæðu til að sinna neinu af þessum málum nema þessu eina. Ég gat ekki fundið ástæðu fyrir því, að þetta eina mál er tekið út úr, því mér finnst, að mörg rök hnigi undir það, að þó þetta mál verði afgr. nú á þinginu, þá séu fyllstu líkur til, að það komi ekki að notum á næsta síldveiðatímabili. Ástæðurnar fyrir þessu eru fleiri en ein.
Í fyrsta lagi er sú, eftir því sem fram hefir komið, að það liggja ekki fyrir neinar áætlanir um það, hvað þessi bygging muni kosta. Það eru ekki til nema mjög lauslegar ágizkanir um þetta, og þær ágizkanir hljóða upp á, að bygging verksmiðju, sem gæti unnið úr 2400 málum á sólarhring, myndi kosta um 1 millj. kr. En ég vil biðja menn að athuga vel, að þetta eru ekki nema ágizkanir, því engar áætlanir eru til um þetta. Við skulum ganga út frá þessu, þó ég gæti vel trúað, að slík verksmiðja byggð á Raufarhöfn myndi kosta 1200 þús. kr. eins og 1 millj., eða ef til vill fyllilega það, því þar koma til greina atriði, sem ég kem ef til vill að síðar. Til þess að reisa þessa verksmiðju, þó hún kosti ekki nema 1 millj., þarf fé, og ég veit ekki til, að það hafi verið gerð hin minnsta tilraun til að útvega það fé. En ég held, að eins og nú horfir málum, þá verði ein millj. ekki gripin upp í skyndi. Auk þess leiðir af sjálfu sér, að um leið og slík verksmiðja er byggð á Raufarhöfn, þá verður óhjákvæmilegt að dýpka höfnina. Ég heyri, að menn eru vongóðir um, að það þurfi ekki mikið fé til þess, en allir eru sammála um. að það þurfi eitthvert fé. Ég tel mér leyfilegt að gizka á, og ég gizka á, að það muni mega gera ráð fyrir, að það fari allt að 200 þús. kr. til þess að verksmiðjan verði nothæf á þessum stað hvað þetta snertir. Þetta fé þarf að fá líka, og ég get ekki betur séð en það sé á rökum byggt að það séu miklar líkur til þess, þó þetta mál gangi fram á þessu þingi, að þessi verksmiðja komi ekki að notum á næsta síldveiðatíma.
Ýmislegt fleira er athugavert við byggingu verksmiðju á Raufarhöfn, eins og t. d. það, að ekki hefir verið rannsakað að fullu, hvað mikið myndi kosta að tryggja verksmiðjunni og þeim skipum, sem við hana skipta, nægilegt nothæft vatn. Það er vitað, að vatn það, sem verksmiðjan notar nú, er tæplega nægilegt handa henni, eins og hún er nú. Það má vera, að þetta sé ekki stórt atriði. En allir sjá, að málið er með öllu órannsakað og óundirbúið, þegar svo einfalt atriði sem það, hvort hægt er að tryggja þar nægilegt, nothæft vatn, er ekki einu sinni upplýst. Það sjá allir, að þá er ekki mikið undirbúið og upplýst um hin stærri atriði.
Ég hefi reynt að gera mér grein fyrir, hvað myndi koma síldveiðunum að mestum notum af þeim ráðstöfunum, sem fram hafa komið hér á þinginu, og ég hefi komizt að þeirri niðurstöðu, að þetta væri einhver tvíráðasta ráðstöfunin, sem hægt væri að gera. Það er byggt á því, að allar líkur benda til, að þessi ráðstöfun geti alls ekki komið að notum fyrir næsta síldveiðitíma.
Ég vil minna á það, að til eru á Austfjörðum tvær verksmiðjur. Um aðra þessa verksmiðju er það vitað, að það liggur fyrir beiðni um stuðning til að stækka hana,og mér er kunnugt um, að það stendur nákvæmlega eins á um hina verksmiðjuna. Það liggja fyrir óskir um að hún verði stækkuð. Þetta mál er ekki fyllilega rannsakað, ég játa það, en þó er hægt að upplýsa það, sem ég hefi áður upplýst hér í hv. d., að viðvíkjandi stækkun á verksmiðjunni á Norðfirði liggja fyrir áætlanir og tilboð í vélar, sem sýna, að stækkunin þyrfti ekki að kosta nema 150–200 þús. kr., eftir því hvort lagt er í að byggja olíugeymi. Ég veit vel, að sú stækkun er ekki hugsuð eins mikil og myndi ekki koma að eins miklum notum eins og sú stækkun, sem hér er talað um á Raufarhöfn, en hitt er víst, að sú stækkun gæti komið að notum strax á næsta ári. Ég hygg líka, ef um það væri að ræða, að fé væri fyrir hendi, þá væri alveg það sama að segja um verksmiðjuna á Seyðisfirði, að það væri hægt að koma í framkvæmd þeirri stækkun, sem um hefir verið talað, svo tímanlega, að hún geti komið að fullum notum á næsta síldveiðitíma. Ég veit það verður sagt að það sé ekki betra fyrir síldveiðarnar, þó stækkaðar séu verksmiðjur á Austfjörðum, vegna þess, að þær liggi fjær síldarmiðunum heldur en verksmíðjan á Raufarhöfn. Þetta er að nokkru leyti satt, en þó ekki nema að nokkru leyti. Ef hagar til eins og síðastl. sumar, og jafnvel fleiri undanfarin sumur, að síldin veiðist eins mikið — ef ekki meira — fyrir austan Langanes, þá er ekki vafi á því, að það er ekki lengur verið að sigla til Seyðisfjarðar og Norðfjarðar heldur en til Raufarhafnar. Þó sigling sé í sumum tilfellum lengri, eins og t. d. af Þistilfjarðarflóa, þá gæti þó nokkuð unnizt við það, að afgreiðsla er alltaf miklu ódýrari á Austfjörðum en Raufarhöfn.
Ég verð að segja, að ég tel það mjög vanráðið að taka þessa einu stækkun á verksmiðju út úr af þeim, sem fyrir liggja, og keyra hana fram án þess að hafa minnstu sönnun fyrir því, að hún geti komið að notum á næsta síldveiðatíma.
Ég vil minnast á eitt enn, sem ekki hefir verið minnzt á neitt sérstaklega. Ég vil gera það af því, að ég hygg, að þar verði ekki beint til mín aðdróttun um hlutdrægni. Stjórn síldarverksmiðja ríkisins hefir látið það uppi við sjútvn. þessarar d., að hún telji mjög aðkallandi, að í Siglufirði verði aukið víð vélakraft verksmiðjanna það miklu, að verksmiðjurnar geti aukið afköst sín um 2400 mái á sólarhring. Þessir sömu menn hafa látið það uppi við sjútvn. og fært allgóð rök fyrir því, að þessi stækkun þurfi aldrei að kosta meira en ½ millj. kr. Ég hefði óskað þess sem þm., að þetta allt væri vel athugað áður en frv. þetta um stækkun verksmiðju á Raufarhöfn væri keyrt í gegnum þingið. Ég held, hvað sem líður áskorunum sjómanna og útgerðarmanna og ótta hv. þm. við, að vilji þeirra sé brotinn á bak aftur, að ég hefði viljað vænta þess, að hv. þm. hefðu þann dómgreindarkraft í sér fólginn, að þeir létu það ekki ráða gerðum sínum heldur það, sem þeir álitu heildinni, útgerðarmönnum og sjómönnum fyrir beztu í framtíðinni.
Ég veit ekki, hvort það er ástæða fyrir mig að hafa þessi orð öllu fleiri. Ég þykist hafa fært allgild rök fyrir því, að það sé ekki af neinni óvild til útgerðarmanna og fiskimanna, að ég gat ekki fylgzt með þessu máli eða mælt með þessu frv. Ég þykist hafa fært allmiklar líkur fyrir því, að það sé ýmislegt, sem vert væri að athuga nánar áður en þetta mál er afgr. úr þinginu, einmitt í sambandi við það, að verða að liði bæði sjómönnum og útgerðarmönnum og að ofbjóða ekki fjárhagsmöguleikunum til framkvæmda. Ég hefði því viljað óska, að þetta mál hefði verið miklu gaumgæfilegar athugað áður en teknar eru í því fastar ákvarðanir Ég er sannfærður um, að það væri alveg eins góð meðferð á þessu Raufarhafnarmáli, að vísa því til ríkisstj. til rannsóknar fyrir næsta þing. Ef verkið er framkvæmanlegt fyrir næsta síldveiðatíma, þá er það eins framkvæmanlegt, þó málið verði ekki framkvæmt á næsta þingi. Hér vantar afl þeirra hluta, sem gera skal. Það vantar fé til þess að reisa verksmiðjuna, því ég hefi aldrei undir meðferð málsins heyrt ymprað á því, hvernig eigi að fá fé eða hvaðan eigi að fá það. Ég álít, að ríkisstj. eigi að leysa þessa hnúta, og málið verði þess vegna bezt afgr. með því að vísa því til ríkisstj. Hinsvegar játa ég, að þetta séu of litlar aðgerðir frá þingsins hálfu til þess að koma á móts við þær óskir, sem fram hafa komið frá þeim mönnum, sem við síldveiði fást, og til þess að koma á móts víð þær þarfir, sem eru fyrir hendi um stækkun verksmiðja. Þess vegna get ég vel á þessu stigi málsins sætt mig við, að málið sé athugað betur. Það gæti vel komið til mála — ég skal ekki segja, hvort eg treysti mér til að fylgja því, enda fer það eftir því, hvernig málið ber að — að hægt væri að afgr. þetta mál frá þinginu, þó því aðeins, að fé fengist til fyrirtækisins, ef rannsókn leiddi í ljós, að það væri haganlegt frá fjárhagslegu sjónarmiði, að leggja í stækkun á þessum stað. Ég hefði því viljað óska þess, að þetta mál yrði tekið út af dagskrá nú, svo ríkisstj. gæfist tækifæri til þess að hugsa málið, svo hægt væri að heyra till. hennar um það. Mér er nær að halda, að eins og málið horfir við nú, þá hafi ríkisstj. litlar vonir um, að hægt sé að framkvæma það eins og það liggur fyrir nú.
Ég get svo látið máli mínu lokið að þessu sinni. Ég hefi ekki hugsað mér á þessu stigi málsins að gera till. um að vísa því til ríkisstj., þó ég af ástæðum, sem ég hefi áður tekið fram, telji, að málinu væri ekki unnið tjón með því. Mér er alveg ljóst, að það er hreinasti barnaskapur að halda áfram að afgr. þetta mál gegnum þykkt og þunnt, án þess að sinna öðrum viðhorfum, sem eru í þessum síldarbræðslumálum. Það er vitað, að það ern miklar líkur til. að þetta verði aðeins pappírsgagn, því það eru engir möguleikar á að notfæra sér fyrirtækið á næsta síldveiðatíma. Ég held því, að öllum sé gerður greiði með því, að málið sé betur athugað.