21.12.1937
Neðri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 945 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)
27. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
*Gísli Guðmundsson:
Ég vil taka það fram, að ég er samþykkur þeim megintilgangi, sem fram hefir komið í þessu máli, sem sé að stj. fái heimild til að reisa nýja síldarverksmiðju á Raufarhöfn, og vil bæta því við, að þótt heimildin gildi fyrir bæði árin 1938 og 1939, þá vil ég vænta þess, að hæstv. stj. noti hana eins fljótt og auðið er. Ég áskildi mér rétt til þess í hv. sjútv. að mega flytja brtt., og liggur hún nú fyrir á þskj. 404. — Brtt. er þess efnis, að í stað þess að gefa stj. heimild til að stækka síldarverksmiðjurnar á Siglufirði, þá verði allt kapp á það lagt að auka afköst verksmiðjanna á austanverðu síldarsvæðinu. Liggur þá nærri að reisa verksmiðju á Þórshöfn á Langanesi, og hefi ég lagt til í till. minni, að stj. fái heimild til að láta reisa þar verksmiðju á næstu árum, er geti unnið úr 1200 málum á sólarhring hverjum.
Alls munu síldarverksmiðjurnar nú geta unnið úr 27–28 þús. málum síldar á sólarhring. Ef nú er athugað, hvernig verksmiðjurnar eru settar, verður niðurstaðan sú, að 1/3 af verksmiðjunum er á einum stað, Siglufirði. Ef lögð eru samin afköst verksmiðianna á Siglufirði og í næsta nágrenni hans, verksmiðjanna við Eyjafjörð, geta þær unnið úr 18 þús. málum síldar á sólarhring. Og nú hefir hæstv. atvmrh. veitt leyfi til mikillar aukningar á einni af verksmiðjunum við Eyjafjörð. Ég álít það mjög óheppilegt, að verksmiðjunum sé hrúgað svona saman á litlu svæði, og fjöldinn allur af útvegsmönnum mun vera á sama máli. Betra væri að dreifa verksmiðjunum svo, að hægt væri að leita til þeirra á víxl, eftir því hvernig síldargöngurnar eru. Viðvíkjandi till. minni um að reisa verksmiðju á Þórshöfn benti hv. frsm. sjútvn. á það, að þar væru vond hafnarskilyrði til slíks. Það er rétt, eins og nú er, er ekki aðstaða þar fyrir skip til að landa síld í bræðslu. En á síðastl. sumri var byrjað þar á hafnarmannvirkjum, og hefir verið haldið þar áfram bryggjugerð. Þegar sú smíði er fullgerð, verður sköpuð aðstaða fyrir öll smærri skip til að landa þar síld. Dýpið við bryggjuna mun verða 13 faðmar á stórstraumsfjöru, og nægir það öllum smærri skipum. Einn af stjórnarmeðlimum ríkisverksmiðjanna er því hlynntur, að verksmiðja verði reist á Þórshöfn, og á fjórðungsþingi fiskifélagsdeildar Norðurlands, sem haldið var á Akureyri fyrir skömmu, var einnig mælt með þessum stað. Ég skal svo ekki hafa þessi orð mín fleiri, en vænti þess að brtt. fái góðar undirtektir.