20.11.1937
Efri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í B-deild Alþingistíðinda. (1320)

98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

*Jón Baldvinsson:

Eftir þeirri grg., sem hæstv. fjmrh. gaf, þegar hann lagði fjárlfrv. fyrir þingið, var auðsætt, að ekki yrði hjá því komizt að bæta við þær tekjur, sem ríkissjóður hefir haft 1936 og '37, ef halda ætti í horfinu og halda uppi þeim framkvæmdum, sem hann hefir haft með höndum undanfarið og teljast verða nær óumflýjanlegar. Ég veit ofurvel, að í frv. þessu, sem flutt er af hv. 1. þm. Eyf. og mér samkv. beiðni hæstv. fjmrh., felast þungar álögur á almenning, og því verður ekki neitað, að bæði hinir beinu og óbeinu skattar eru þegar orðnir allháir. Það, sem menn verða því að gera upp við sig í þessu tilfelli er það, hvort þeir vilja heldur láta niður falla hinar ýmsu framkvæmdir, sem ríkissjóður hefir látið framkvæma á undanförnum árum, eða afla nýrra tekna, því að það er ekki hægt fyrir ríkissjóð að halda áfram að safna lausaskuldum í það óendanlega; slíkt hjúskaparlag getur ekki talizt ríkissjóði sæmandi, og á helzt hvergi að eiga sér stað.

Það mun mega segja, að með frv. þessu sé gengið eins langt í öflun tekna með beinum sköttum og mögulegt er, og geti því ekki orðið um nægilega tekjuöflun að ræða ettir þeirri leið einni saman. Hefir því verið horfið að því ráði, að afla hinna nauðsynlegustu tekna á breiðari grundvelli. Að sjálfsögðu er okkur alþýðuflokksmönnum óljúft að ganga langt á þeirri braut, að afla tekna með óbeinum sköttum, en þegar velja er á milli þess og fella niður nauðsynlegar framkvæmdir ríkissjóðs, sem gert er ráð fyrir á fjárlögum og sumpart er verið á leiðinni með í frv., sem verið er að leggja fyrir þingið, þá tökum við þó þann kostinn, að sveigja nokkuð frá þessu stefnu atriði okkar, og við munum að sjálfsögðu taka á okkur þá ábyrgð, sem af því kann að leiða.

Ég get nú búizt við, að t. d. sjálfstæðismenn komi fram með hróp um það, að ekki dugi sú gegndarlausa eyðsla, sem verið hafi, og því verði að skera eitthvað niður af útgjaldaliðunum. Þó að þeir aldrei nema segi eitthvað þessu líkt, þá býst ég samt ekki við, að það væru margir liðir, sem þeir vildu fella niður, ef þeir færu að fletta fjárlfrv. Annars virðist mér, að þeir hafi ekki verið deigir að koma með till. til útgjalda, þrátt fyrir þetta sífellda sparnaðarhjal sitt og í þetta sinn láta þeir sér það ekki nægja að bera fram stórar till. til útgjalda, heldur liggja fyrir frá þeim að þessu sinni frv. um að svipta ríkissjóðinn stórum hluta af tekjum sínum. Á meðan þessir menn sýna ekki í verkinu meiri tilraun til sparnaðar á ríkisfénu en till. þeirra ber vitni um, þá finnst mér, að þeir ættu ekki að vera að brýna okkur andstæðinga sína með ábyrgðarleysi og óhófseyðslu.

Þar sem ég er ekki 1. flm. frv. þessa og hafði ekki búizt við að þurfa að taka svona snemma til máls við þessa umr., þá hefi ég ekki þessi orð mín fleiri að sinni, og víst að öðru leyti til hinnar ýtarlegu grg., sem frv. fylgir. — Að umr. lokinni óska ég frv. visað til 2. umr. og fjhn.