20.11.1937
Efri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)

98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

Forseti (EÁrna) :

Út af þeim orðum, sem hv. þm. Vestm. lét falla í ræðu sinni, um að hæstv. fjmrh. hefði ekki verið í d. til þess að hlusta á umr. um þetta mál, vil ég upplýsa, að ráðh. hefir verið bundinn við atkvgr. í hv. Nd., eins og hann á fullan rétt á og er jafnvel skylt að gera, og það er því næsta óviðurkvæmilegt, að hv. þm. sé að væna hæstv. ráðh. um, að hann vilji ekki vera hér viðstaddur.