20.11.1937
Efri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)
98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga
Jóhann Jósefsson [frh.] :
Hæstv. fjmrh. átti það sammerkt við hv. 2. flm. frv. að mæta fyrirfram hugsuðum mótbárum, sem fram kynnu að koma frá okkur stj. andstæðingum gegn þessu nýja skattamáli. Það er nú hver sjálfráður, hvernig hann hagar orðum sínum, en ég hefði talið nægilegt fyrir báða aðilja að bíða eftir, að þær raddir létu til sín heyra hér í hv. d. og þær mótbárur kæmu fram, sem hæstv. ráðh. var að gera okkur upp.
Mér virðist a. m. k. að þessi leið hafi verið farin vegna þess, að hæstv. ráðh. hafi ekki getað fundið neitt sniðugt nafn fyrir þessari nýju tollahækkun. Annars hefir stj. meirihlutinn verið ærið glöggur á það á undanförnum þingum að finna ný og ný nöfn fyrir hækkunum á skattabyrði almennings, og hefir þar legið til grundvallar ótti við, að þessar síauknu álögur mundu vekja andúð, og þess vegna hefir verið valin sú leið, að nefna álögurnar ýmsum velvöldum nöfnum, eins og t. d. víðskiptagjald. o. fl.
Ég minntist á það, meðan hæstv. ráðh. var fjarverandi, að ég gæti ekki séð, að það væri rétt í grg., að um væri að ræða nýjar 700 þús. kr. til jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga, þar sem í 17. gr. fjárlfrv. er gert ráð fyrir 250 þús. kr., sem þar hafa áður verið. Það stappar nærri því að hlekkja þingheim, þegar því er haldið fram, að hér sé um nýjar 700 þús. kr. að ræða, sem eigi að verja til að létta byrði sveitar- og bæjarfélaga, þegar þetta eru í raun og veru 450 þús. kr., en sá léttir held ég, að nái skammt. Ég held, að þörfin sé mjög brýn hjá bæjar- og sveitarfélögunum fyrir auknar tekjur. Þó að ég viðurkenni viðleitni til að hjálpa að einhverju leyti bæjar- og sveitarfélögunum, verð ég að segja, að þetta nær allt of skammt, einkum ef sá skilningur minn er réttur, að upphæðin sé ekki sú, sem gert er ráð fyrir.
Hv. 2. flm. eyddi miklum hluta ræðu sinnar í að sýna fram á, hversu miklu betur fjármálin væru farin í höndum þeirra, sem nú ráða, heldur en ef stjórnarandstæðingar réðu, og nefndi í því sambandi till. frá okkur sjálfstæðismönnum, sem mundu kosta ríkissjóð stórfé. Hæstv. ráðh. tók í sama streng, en hann gæti sparað sér alla spádóma um þetta vegna tveggja staðreynda, sem hæstv. ráðh. getur ekki komizt framhjá. Í fyrsta lagi var þorri þeirra manna. sem nú eru stjórnarandstæðingar á Alþ., ábyrgur fyrir stj. landsins árin 1924-1927, og á þeim tíma auðnaðist þeim að lækka skuldir ríkisins um 6 millj. kr., og auk þess árið 1926 að létta að nokkrum mun þau gjöld, sem hvíldu þyngst á atvinnuvegunum, nefnilega að lækka óbeina skatta. Samt er það viðurkennt, að verklegar framkvæmdir voru auknar mikið, frá því sem áður var. En hinn svokallaði stuðningur við atvinnuvegina, sem stjórnarflokkarnir guma af nú, fer að miklu leyti í að styrkja ýmsar miður heppilegar ráðstafanir, sem kosta mikið fé, en er ekki hægt að skoða sem verulegan stuðning. t. d. allt það reginfé, sem rótað er í fiskimn., sem hefir gert hvert glappaskotið á fætur öðru. Og þó að glappaskot fiskimálan. séu opinbert mál, á með nýjum tiltektum að veita henni enn meira fé. Hæstv. ráðh. getur haft sinn skilning á þessu, en hann verður að afsaka, þó að við getum ekki lokað augunum fyrir öðrum eins staðreyndum.
Í öðru lagi vil ég nefna stjórnartíð hæstv. ráðh. sjálfs. Það eru bara fáir dagar, síðan hv. d. afgreiddi heimild til ríkisstj. til þess að taka innlent lán til að fylla upp í þann halla, sem var orðinn á ríkisbúskapnum. Hæstv. ráðh. veit. að í hans stjtíð hefir hvert þing aukið gjaldabyrðar almennings, og að ástand atvinnuveganna hefir aldrei verið eins bágborið eins og nú og atvinnuleysi eins mikið. Ef hæstv. ráðh. vildi viðurkenna þessa augljósu staðreynd, ætti það að hjálpa honum til að spara sér spádóma um, hvað við sjálfstæðismenn mundum gera, ef við réðum. Mér sýnist, með allri virðingu fyrir meiri hlutanum, að hann hafa af svo litlu að státa um fjármálastjórn, að hann ætti ekki að leggja sig undir ásakanir fyrirfram hjá stjórnarandstæðingum.
Þegar allt kemur til alls, er það ekki þungamiðja þessa máls, hvort tollar af þessari eða hinni vörunni er hærri eða lægri, heldur hitt, hvaða afleiðingar fjármálastefna stj. hefir á hverjum tíma fyrir íbúa landsins, og ef við lítum á, hvaða afleiðingar hún hefir haft fyrir atvinnuvegina, finnst mér ekki, að ráðh. geti verið mikið upp með sér.
Nei, hæstv. ráðh. þarf ekki að halda, að það sé neitt aðalatriði, hvort hann leggur nú 10% á aðfluttar vörur eða velur aðrar leiðir. Aðalatriðið er, að fjármálastefna ríkisstj. hefir í för með sér hrun, hrun atvinnuveganna og sívaxandi fátækt borgaranna, nema þess flokks manna, sem reka iðnfyrirtæki hér, sem draga til sín alla hækkun á aðfluttum vörum. — Það er svo sem viðurkennt af orðalaginu, að þessar uppálappanir eru fálm eitt. Orðið „bráðabirgða“ er orðið kjörorð. Það ætti að vera kominn tími til að taka til endurskoðunar öll þessi mörgu l. um tekjuöflun. Þessi eilífa vöntun á fé rekur ráðh. til að fara einhverjar leiðir, bara einhverjar leiðir.
Hæstv. ráðh. minntist á iðnfyrirtækin og sagði, að það yrði að vera takmörk fyrir því, hvað mikið iðnaðurinn væri studdur. Sú athugun hefir nú komið frá mér og öðrum, en enginn gaumur verið gefinn. Það hlýtur samt að reka að því, að mönnum skiljist, að iðnaðurinn er því aðeins til blessunar, að hann sé rekinn á heilbrigðum grundvelli, en þegar svo er að sjá sem iðnaðurinn þurfi í sinn vasa allt, sem annars mundi koma í ríkissjóðinn, þá hlýtur hann að vera aukin byrði fyrir gjaldendur landsins. Við sjálfstæðismenn höfum ætíð viðurkennt, að það bæri að styrkja iðnaðinn, en hér er komið upp mikið af iðnaði, sem á sér engan tilverurétt annan en höftin. Mig grunar, að hæstv. fjmrh. sé farið að sjá, að það er ekki endalaust hægt að spenna bogann um beina skatta í ríkissjóðinn, og að það eru takmörk fyrir verndun með tollum. Mig uggir, að ráðh. eigi eftir að lifa þá stund, að hann sjái, að höftin ein geta ekki frelsað landið, heldur eru þau vatn á milla fjölda manna, sem ráðh. segir, að þurfi í sinn vasa hækkun á tollum af þeim vörum, sem þeir framleiða.