11.12.1937
Efri deild: 47. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (1372)

98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

*Jón Baldvinsson:

Við höfum meiri hl. fjhn. komið fram með till. til þess að undanþiggja nokkrar vörur þeim viðaukatolli, sem annars hafði verið hugsað að leggja á þær. Hefir frsm. gert grein fyrir þessum till. af okkar hálfu. Í þessum till. er t. d. sýndur litur á því að hækka ekki tolla á nauðsynjavörum til útgerðarinnar. Það er nú mál manna, að útgerðin standi sig illa. Þetta er rétt. Og það hefir af hálfu þessa þings verið sýnd nokkur viðleitni til að létta undir með útgerðinni. Menn minnast þess, að um daginn voru afgr. l. frá Alþingi um niðurfelling útflutningsgjalds á saltfiski, og ýmislegt er það fleira í löggjöf þessa þings, sem miðar í þá átt að létta undir með útgerðinni og gera tilraunir til breyt. á þessum atvinnuvegi, sem horfa í lífvænlegri átt fyrir þá, sem hann stunda. Nú mega menn ekki heldur líta eins svart á þennan atvinnuveg og framtíð hans eins og sumir gera. Það er að vísu rétt, að þorskveiðarnar brugðust algerlega í fyrravetur, en hinsvegar var í sumar ágætt aflaár á síldveiðum, og mun það hafa unnið nokkuð á móti því tapi, sem varð á þorskveiðunum. En það er rangt að miða hag útgerðarinnar við lakasta árið hvað afla og verðlag snerti. Það er sem betur fer, að þó að þetta síðasta ár hafi orðið bæði aflabrestur og verðfall, þá eru ekki líkur til, að það verði frekar þannig næsta ár. Mér er t. d. sagt, að það muni í vetur verða hægt að selja saltfisk betur en undanfarið, þó að vitanlega sé erfitt að sjá fram í tímann í þessu efni. Fjhn. hefir sem sagt viljað reyna að mæta erfiðleikum útgerðarinnar með því að undanþiggja þessar vörur hinu nýja viðskiptagjaldi, en n. taldi sér ekki fært að ganga lengra en hún hefir gert í þessu efni. Það verður þá að bíða Nd. að athuga, hvort frekar megi fara í ívilnunum. Við víkjandi hækkunum þeim, sem gerðar eru í till. okkar, er það að segja, að þar er farið eins varlega og hægt er, úr því að farið er að hækka á annað borð. Það er varla hægt að telja það hækkun, hvað það er minna en 1%, en það er það, sem við leggjum til að hækkunin nemi. Það er nú svo, að það verður vart gengið lengra í tollaálagningu. En menn verða að athuga það, þegar menn tala um tollana til ríkissjóðs, að þessar hækkanir stafa ekki af öðru en því, að á síðustu árum hefir ekki verið hægt gjaldet-risins vegna að leyfa innflutning á þeim vörum, sem mestar tolltekjur hafa gefið í ríkissjóðinn. Við höfum ekki haft efni á að kaupa ónauðsynlegar vörur, en af þeim hefir verið mestur tollur. Það er af þessum ástæðum, sem við höfum neyðzt til að hækka tollana á nauðsynjavörur. Ég skal játa það, að ég er engan veginn ánægður með þá skiptingu á benzínskattinum, sem gerður er í 4. gr., og ég hefi mikla tilhneigingu til þess að koma með brtt. um það, að lagt yrði fé til þess að koma Vestfjörðum í samband við vegakerfi landsins, en það mætti gera með því að leggja 10 þús. kr. veg í N-Ísafjarðarsýslu og 10 þús. kr. veg í Strandasýslu. Það er vert að geta þess, að þessi hluti landsins hefir á undanförnum árum aldrei fengið neitt til vegagerðar, sem verulegu máli skiptir. Kemur þar til, að mjög er erfitt að leggja þar vegi. En nú er það sýnt, að hægt er að leggja vegi yfir margar torfærur, sem áður voru taldar óbrúandi. Ég vil þess vegna láta koma hér skýrt fram, að ég vil verja af benzínskatti eigi minna en 20 þús. kr. til þess að tengja Vestfirði við vegakerfi landsins. Það mætti taka þetta fé af framlaginu til Holtavörðuheiðarvegar og Austurlandsvegar. Ég vil einnig taka undir með hv. 1. þm. Eyf. um það, að til vega út frá Akureyri er mikil þörf fyrir aukið framlag. Akureyri er miðstöð samgangnanna við Norðurland, alveg eins og Reykjavík fyrir Suðurland, og hún virðist eiga fullan rétt á þessu. Annars skal ég taka það fram, að ég mun yfirleitt halda mér við till. fjvn. og samþ. þar, en greiða atkv. móti till., sem fram hafa komið frá öðrum hv. þm.

Ég vil að lokum lýsa því yfir fyrir hönd Alþfl., að við teljum rétt, að tekin verði til athugunar skipting benzínskattsins milli héraða. En sennilega verður ekki tími til þess fyrr en í Nd. — Læt ég svo útrætt um þetta, en mun að öðru leyti sína með atkv. mínu, hvernig ég snýst við brtt. einstakra þm.