18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (138)

1. mál, fjárlög 1938

*Einar Olgeirsson:

Hæstv. forseti! Það vantaði ekki rostann í hv. þm. G.-K., þegar hann var að tala í útvarpið í gær og í dag. Það var eitthvað annað en framferði þeirra íhaldsmanna annars hér á þingi, því að hér nenna þeir varla að mæla með sínum eigin frv.; hér í útvarpinu, frammi fyrir hv. kjósendum, þenja þeir sig um nýju tollana og hve ósvífnir þeir séu, en við 1. umr. um aðaltollafarganið í hv. Nd. hreyfði enginn þeirra legg eða lið til að mótmæla tollunum. Það vorum við hæstv. fjmrh. einir, sem deildum um þá. Svona er nú munurinn á þeim íhaldsmönnum, eftir því, hvort þið hlustið á eða ekki.

Það er alveg sérstaklega eftirtektarvert, hvað íhaldið hefir haft hægt um sig á þessu þingi, þó að það hinsvegar hafi borið fram frumvörp í þingbyrjun, sem þýddu minnkaðar tekjur og aukin útgjöld ríkissjóðs upp á 4–5 millj., og þó að það bregði sér á þeysingssprett í lýðskruminu hér í útvarpinu. Á þinginu hefir auðsjáanlega ein hugsun gagntekið íhaldsforingjana — hugsunin um bandalagið við Jónas frá Hriflu. Hægra brosið hefir seitt þá, lyktin af kjötkötlunum, sem þeir eru alltaf að fordæma, hefir lokkað þá. Eftir að hafa drepið aumingja Bændafl. í flatsænginni hjá sér í vor, þá mæna þeir nú hungruðum augum til Framsóknar og vilja nú fá hana til að fara sömu leiðina. Þið tókuð líka eftir því í gær, að það féll vart styggðaryrði af vörum hv. þm. G.-K. í garð Framsóknar. Þeir vilja nú taka sig vel út í augum samvinnumanna, þessir nýju vinir Jónasar frá Hriflu. En það er dálítið annað að heyra til þeirra íhaldsmannanna stundum hérna í þinginu, ef þeir reiðast og fara að tala um „þjóðlygina“, sem Framsókn byggi tilveru sína á, svo sem t. d. kenninguna um „tvöfalda skattinn“, eins og hv. 2. þm. Reykv. sagði í ræðu um daginn. En það var ekki ætlað fyrir eyru samvinnubændanna, sem átti að fara að fleka til samstarfs við íhaldið, á móti verkalýðnum. Ég býst við, að í umtalinu um tvöfalda skattinn birtist hvað bezt tvöfeldnin í íhaldinu, þegar það er að manga til við Framsókn nú, þegar arftakar selstöðukaupmannanna vilja fara að vingast við samvinnuhreyfingu landsing.

Og þá vantaði nú ekki blíðmælgina við alþýðuna hjá hv. þm. G.-K. í gær. Hann viknaði, þegar hann talaði um tollana. Jú, þeir eru nógu slæmir, nýju tollarnir upp á á aðra millj. En hv. þm. gleymdi bara að minnast á skattinn, sem heildsalaklíkan í Reykjavik, aðaluppistaðan í íhaldinu, leggur á þjóðina. Kostnaðurinn við að koma innfluttum vörum, sem kosta 50 millj. kr. í innkaupi, út til þjóðarinnar, er yfir 20 millj. kr., og af því tekur heildsalastéttin 4–5 millj. kr. í hreinan gróða. Og þegar við kommúnistar höfum lagt til að skera þennan 4–5 millj. kr. heildsalatoll niður, þá þýtur íhaldið upp til handa og fóta og æpir sig hást um verzlunarfrelsi. En þegar alþýðan hefir viljað njóta verzlunarfrelsisins og skapað sín eigin samtök, þá hefir íhaldið hamazt á móti því, að þau fengju gjaldeyrisleyfi, hrópað upp um óréttlæti o. s. frv. Verzlunarfrelsið á að þeirra dómi að vera frelsi 10–20 heildsala til að okra á þjóðinni, — og verstu tollarnir eru að dómi íhaldsins sjálfsagðir, ef það bara eru heildsalarnir, sem leggja þá á og kalla þá álagningu. —

Ósvífnast verður þó þetta hjartnæma hjal íhaldsins út af dýrtíðinni, þegar það er athugað, að sjálfir forsprakkar íhaldsins heimta á sama tíma gengislækkun, sem alltaf næmi ca. 20%, m. ö. o. um leið og þeir bölsótast út af tollum upp á 2–3 millj. — og ég ætla vissulega ekki að mæla þeim tollum bót —, þá heimta þeir verðhækkun á öllum innfluttum nauðsynjavörum, sem myndi nema um 8 millj. minnsta kosti.

Svo tala þessir sömu herrar af mikilli andakt um atvinnuleysið, — það vantar ekki tilfinninguna með verkamönnum og sjómönnum, þegar t. d. hv. þm. G.-K., ÓTh. talar hér í útvarpið um hið sívaxandi atvinnuleysi. En á sama tíma er bróðir hans, Richard Thors, að tilkynna f. h. togaraeigenda, að eftir nýár verði togurunum lagt, neitað að ganga að kaupkröfum sjómanna og atvinnuleysið aukið. — Gott er að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri, má íhaldsfl. segja.

En samt er nú allt, sem íhaldið vill gera fyrir neytendur, verkamenn og sjómenn, bara smásmíði hjá öllu því, sem þessir háu herrar vilja gera fyrir útgerðina. Það er ekkert smáræði, sem þeir segjast vilja gera fyrir hana núna. En hvað gerðu þeir, þegar þeir höfðu sjálfir ráðin til þess?

1932 komu þeir á einokun á saltfiskinum, og Ólafur Thors gaf út bráðabirgðalög, sem lögfestu einkasölu á saltfiski handa hring, sem h. f. Kveldúlfur réði. Og 1934 höfðu þessir herrar líka tækifæri til að gera dálítið fyrir saltfiskútgerðina, — og hvað gerðu þeir? Þeir settu verðjöfnunargjaldið alræmda á fiskinn, 5 kr. á skippund, sem síðan var mest allt notað í mútur til Spánar. Sem sé: þegar þessir herrar réðu, fengu ísl. fiskimenn að borga 1½ milljón, en spánskir auðmenn og fasistar hirtu það! Svona er nú veruleikinn !

Hv. þm. G.-K. talaði af miklum móði áðan um makk sitt við formann Framsfl. Hann kvað þjóðina í voða. Ég vil segja honum, að einn aðalvoðinn stafar einmitt af þessu makki þeirra í þjónustu Landsbankavaldsins. Hann kvað pestina vera að drepa sauðfénað bænda. Það er rétt, en það bætir ekki að koma andlegri pest íhaldsins í Framsfl. líka.

Og hv. þm. kvaðst ekki mundu fangelsa okkur kommúnista, þó að hann kæmist til valda. Annað hugði hann á, þegar hann var að undirbúa fangelsun helztu foringja Kommfl. og Alþfl. eftir 9. nóv. 1932, og annað sýna stéttardómarnir yfir 30 kommúnistum á Siglufirði, svo að honum er bezt að spara sér blíðulætin við okkur. Mér finnst, að hv. þm. ætti að lofa því að afnema alla tolla og skatta, og svo gæti hver fengið það, sem hann þyrfti, úr ríkissjóði, því að heildsalarnir og stórútgerðarmennirnir mundu borga í hann af fúsum vilja allt, sem þyrfti — eftir trú hv. þm. G.-K.!

Þegar þessi flokkur, sem nú kallar sig Sjálfstæðisflokk, kom fram í íslenzku þjóðlífi, kallaði hann sig sparnaðarbandalag og ætlaði sérstaklega að berjast á móti allri eyðslu rauðu flokkanna. Nú stendur hann sjálfur með útgjaldafrekustu till., sem nokkur flokkur hefir

borið fram á nokkru þingi og kvartar um, að of lítið sé að gert. Þetta sýnir betur en nokkuð annað þróun þessa flokks úr gamaldags íhaldi yfir í nútíma hálffasistískan flokk, með öllu því lýðskrumi, sem slíkum fylgir. Ég vona, að menn láti því tal hans ekki villa sig, en dæmi íhaldið nú sem fyrr eftir verkum þess.

Ég verð að víkja nokkrum orðum að hv. þm. Dal. Nú er hann svo langt leiddur, að hann er farinn að hæla Jónasi frá Hriflu, eða ætti ég heldur að segja, að hv. þm. S.-Þ. væri svo djúpt sokkinn, að hann væri orðinn fyrirmynd í augum foringjans í Bændafl.?

Hv. þm. Dal. talaði um nauðsynina á vinnulöggjöf. Ég ætla ekki að fara að deila við hann um hana. Ég ætla bara að segja honum það, að allir verkamenn og margir bændur líta svo á, að áður en farið verði að skerða dýrmætustu réttindi verkamanna — rétt þeirra til samtaka og verkfalla, rétt þeirra til að setja sanngjarnt verð á vinnu sína —, áður en það verði gert, ætti að setja lagalegar skorður við því, að hægt sé að braska með jarðir og lóðir í landinu, öllum vinnandi mönnum til óþurftar, og hindra það, að menn geti sett svo ósanngjarnt verð á það, sem þeir selja, að menn t. d. kaupi á 4000 kr. og selji aftur á 40000 kr.

Þá kem ég að hæstv. ráðherrum. — Hæstv. fjmrh. vildi halda því fram, að tekjuöflunarfrv. okkar gæfu ekki 1 millj. Þetta er alrangt, og ég skal sanna það með framburði stjórnarsinna sjálfra:

1) Stóribúða- og háleiguskattur, sem lendir eingöngu á lúxusíbúðum og óhóflegri leigu, gefur ...................... kr. 200000

Nú, hv. þm. S.-Þ. segir 1933, að hann sé varlega áætlaður 150000 kr. Hæstv. núv. atvmrh. áætlar árið 1931 hvern skattinn um sig 200000 kr. Þá sé ég ekki, að sé of mikið að við áætlum báða skattana 200000 kr. nú.

Hæstv. forsrh. gerði þá aths., að menn væru ekki svo bjartsýnir nú, að þeir reistu stórhýsi yfir sig, en annað sýnir nú veruleikinn. En má ég spyrja hæstv. ráðh.: Var bjartsýnin meiri árið 1933, á svartasta kreppuári, þegar hv. þm. S.-Þ. bar fram samskonar frv.?

2) Vaxtaskatturinn. Hv. þm. S.-Þ. hefir áætlað 25% af sömu stofnum og við, og verða það alls 1250000 kr. Við höfum áætlað 10% = 500000 kr.

Þá eru eftir: verðhækkunarskattur á fasteignir. Lúxusbílaskattur. Stighækkandi fasteignaskattur. Alls minnst 300000 kr.

Hæstv. forsrh. talaði hér áðan af miklum móði um að við kommúnistar værum ekki að deila hér á til að efla stjórnarsamvinnuna. Við deilum hér á stjórnarflokkana til að fá þá til að hætta við íhaldsstefnuna. Við heimtum af þeim, að þeir framkvæmi stefnuskrá Framsfl. og Alþfl. Við erum rödd kjósendanna til þeirra, ég vil næstum segja rödd samvizku þeirra sjálfra. Þess vegna reiddist hæstv. forsrh. því, sem við höfum sagt hér.

Viðvíkjandi því, sem hæstv. forsrh. sagði um síldarverðið og deildi á kommfl. fyrir afstöðu hans til síldarverksmiðjumálsins, þá hefði hann eins mátt snúa sér að samstarfsflokki sínum, Alþfl., um það. Kommfl. og Alþfl. standa alveg saman í því máli, og ég ætla, að það væri nær fyrir hæstv. forsrh. að snúa geiri sinum að því valdi, Landsbankavaldinu, sem nú ógnar Alþ., ef það ekki láti að vilja þess um að ræna síldveiðendur milljónum króna handa Kveldúlfi.

Ég held, að hæstv. forsrh. ætti að sýna hina margumtöluðu ábyrgðartilfinningu sína í því að fara að taka alvarlega á yfirdrottnun Landsbankaklíkunnar og kalla þá menn til ábyrgðar, sem hafa á síðustu 15 árum tapað upp undir 20 millj. kr. af þjóðarauði okkar fátæku þjóðar.

Hæstv. forsrh. vitnar til Kommfl. Spánar og Frakklands. Ég vil spyrja: Vill hæstv. forsrh. taka þátt í samskonar þjóðfylkingu og þar er, þjóðfylkingu, sem sýni ábyrgðina gagnvart fólkinu í framkvæmd? En þá er honum bezt að prédika ekki hlutaskipti og vinnulöggjöf í óþökk verklýðssamtakanna. Og stjórn, sem sýndi þannig í framkvæmdinni ábyrgðartilfinningu, mun Kommfl. styðja sem ábyrgur flokkur.

Ég ætla að síðustu að víkja nokkrum orðum að því, sem hæstv. atvmrh., Haraldur Guðmundsson, sagði í gærkvöldi. Hann tók undir það með hæstv. fjmrh., að tekjuöflunarleiðir okkar kommúnista væru sýnd veiði, en ekki gefin. Ég er búinn að sanna, hvað rétt er í þessu. En mig langar til að spyrja hæstv. ráðh. að því, þar sem við erum svo hæverskir að koma ekki með kröfur nema upp á 1 millj. kr. og benda á tekjur á móti, hvað hann myndi þá segja, ef við kæmum með frv. um 11 millj. kr. til atvinnubóta, og ef við hefðum t. d. tekið þessi frv., sem hann sjálfur hafði samið, og soðið upp úr þeim frv. og borið fram nú. Hefði hann þá sagt, að það væri sýnd veiði en ekki gefin? Ég vil minna hann á, að það er ekki nema 1 millj., sem við förum fram á í þessu sambandi, að tekin sé af tekjum ríkissjóðs, en atvmrh. og flokksmenn hans voru ekki í vandræðum með að bera traust á þinginu 1931 frv. um 11 millj. kr., sem verja átti úr ríkissjóði til baráttu gegn atvinnuleysinu.

Þá reyndi hæstv. atvmrh. ennfremur að verja tollana. Ég verð í því sambandi að leyfa mér að vísa í þingræðu hans 1931 um verðtollinn. Hann segir þá, með leyfi hæstv. forseta: „Skatta- og tollalöggjöfin er óhæf handahófssmíð, og stefna hennar er ekki önnur en sú, að hlífa þeim við að greiða skatta, sem bezta hafa aðstöðuna til þess að greiða þá. Niðurstaðan verður sú, að beinu skattarnir verða 14,5% af tekjum ríkissjóðs, en óbeinir skattar 85,5%, eða nærri því sex sinnum hærri.“

Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því, hvort þetta hafi batnað síðan hann var að deila á þetta. Hæstv . ráðh. mun verja sig með því, að ekki sé hægt að afla fjár til framkvæmdanna, nema með því að auka tollana. Við kommúnistar höfum bent á, að það, að tolla brýnustu nauðsynjar alþýðu til að auka með því framlög, væri að taka úr einum vasanum og setja í hinn. Hæstv . ráðh. sagði á þinginu 1931 í ræðu sinni um verðtollinn eftirfarandi orð:

„Langmest af útgjöldum ríkis og sveitar- og bæjarfélaga er falið í kaupgjaldi og sveitarstyrk. Þessar greiðslur nema fast að 20 millj. kr. á ári. Samkv. útreikningi hagstofunnar eru það a. m. k. 10% af þessari upphæð, eða fast að 2 millj. kr., sem beinlínis eru til orðnar vegna tolla. Það virðist léleg fjármálavizka hjá því opinbera að leggja á þessa háu tolla, sem gera það að verkum, að það verður að greiða fast að 2 millj. kr. í aukið kaupgjald og aukinn sveitarstyrk vegna dýrtíðar, sem hið opinbera sjálft skapar með þessum ráðstöfunum. Það, sem gert er með þessu, er ekkert annað en að það, sem tekið er úr öðrum vasanum, er sett í hinn.“

Þetta eru ekki mín orð, heldur orð hæstv. atvmrh., en ég get strikað undir þau.

En viðvíkjandi því, að þetta sé gert sérstaklega til þess að hjálpa hinum fátækari, þá ætla ég að leyfa mér að lesa upp, hvað hæstv. atvmrh. sagði um það þá:

„En í hverju koma þessar ráðstafanir fram? Í því, að öllum, sem hafa lítið, á að hjálpa með því að leggja 20% á lífsnauðsynjar þeirra. Hann er að hjálpa bændunum, sem þurfa að kaupa fyrir segjum 200 kr., með því að taka 40 kr. af þeim. Naprara gys er ekki hægt að gera að mönnum, sem eiga bágt.“

Svo sagði hæstv. atvmrh. þá, þegar hann var ekki ráðh. Hvað hefði hann sagt nú, ef hann hefði ekki verið ráðh.?

Hvað á að gera við stj., sem þannig hefir hagað sér og brugðizt vonum kjósendanna? Þið vinnandi menn og konur, sem hafið kosið flokkana, sem höfðu lækkun tollanna á stefnuskrá, þið, sem hafið ekki atvinnu, fæði eða föt, en bjuggust við atvinnu, fáið nýja tolla. Ég efast ekki um dóm ykkar.

Ég ætla að leyfa mér að lesa upp, hvernig hæstv. atvmrh. dæmdi um slíkt 1931. Hann var þá að deila við þáv. forsrh. viðvíkjandi þessu, og af því að þetta er mjög skemmtilegur kafli, þar sem hann kemur m. a. inn á stefnuskrá Framsfl., þá ætla ég að lesa það allt. Það er í ræðu hans um verðtollinn 1931. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Og loks á flokksþingi þeirra hér í Rvík síðastl. vetur var samin stefnuskrá Framsfl. í tolla- og skattamálum. Stefnan er þessi: Að lækka tolla, sem hvíla á nauðsynjavörum, en auka beina skatta og hækka tekju- og eignarskatt af miklum tekjum og eignum.

Þessi stefnuskrá var samþ. af Framsfl. á fundi, sem haldinn var í apríl í vor, og var síðan prentuð með skrautletri á fremstu síðu í Tímanum og öðrum framsóknarblöðum og send út um allt land til að sýna, hvaða ágætismenn þessir framsóknarmenn væru.

Þessi stefnuskrá skýtur dálítið skökku við stefnu stj. hér á Alþ., því að fyrsta verk stj. var að reyna að fá verðtollinn framlengdan um 2 ár, en sá tollur er að mestu leyti tekinn af nauðsynjum fólks, þeim vörum, sem eftir stefnuskrá Framsfl. átti að lækka tollinn á, en engin viðleitni er sýnd til að færa þetta í réttlátara horf. Þetta bendir á, að ennþá hafi lítið verið gert í tolla- og skattamálum, nema að gefa loforð. Þannig hafa þeir ginnt og gabbað kjósendur og breytt þvert ofan í það, sem þeir hafa lofað. Ég fullyrði það, að í hverju öðru landi hefði slík framkoma skapað slíkum stjórnmálaflokki aldurtila.“

Svona sterkt komst hæstv. atvmrh. að orði, þegar hann var að deila á Framsókn þá. Við erum nú ekki svona vondir við stjórnarflokkana eins og hann var þá. Við deilum á stjórnarstefnuna nú, af því það er ekki þeirra stefna, heldur stefna íhaldsins. Íhaldsstefnunni í Framsfl. og Alþfl. verður að kippa upp með rótum. Það er þessi íhaldsstefna, sem þarf að skapa aldurtila, en stjórnarflokkarnir eiga vonandi eftir að blómgast á öðrum grundvelli heldur en þeir starfa nú á.

Þá minntist hæstv. atvmrh. síðast á það, að nauðsynlegt væri, að verkalýðurinn sameinaðist, og það hefði ekki staðið á Alþfl. að sameinast. Við kommúnistar erum hvað eftir annað búnir að gera tilraunir til þess að komast að samvinnu eða sameiningu við Alþfl. En í gær fengum við þá tilkynningu frá stjórn Alþýðusambandsins, að nú vildi hún ekki tala við okkur í nefnd, sem kosin væri til að ræða um málið. En það er enginn vafi á því, að íslenzki verkalýðurinn vill sameinast, — og hann mun sameinast. Það er leitt, ef ýmsir helztu foringjar Alþfl. bera ekki gæfu til að verða með í þeirri sameiningu, ef þeir skilja ekki tímanna tákn, en daga uppi sem nátttröll, þegar eining alþýðunnar er nú að skapast.

Þegar tilboðunum á Alþýðusambandsþinginu, sem við myndum hafa getað gengið að, var hafnað, en því eina tilboði, sem vitað var, að við gátum ekki gengið að, tekið, þá sýndi það sig, að það var ekki fyrir hendi vilji til sameiningar. En nú er verkalýðurinn að sameinast. Hann hefir þegar ákveðið að ganga saman til bæjarstjórnarkosninganna á Siglufirði, Norðfirði, Sauðárkróki, Vestmannaeyjum og Seyðisfirði. Þetta sýnir, að eining hins fátæka, vinnandi lýðs er að skapast, og nokkrir háir herrar í Reykjavík skulu aldrei megna að hindra hana.

Við höfum viðvíkjandi bæjarkosningunum í Reykjavík boðið Alþfl. sameiningu um lista, en þeir svöruðu ekki. Er þetta að sýna einingarviljann í verkinu? En íslenzki verkalýðurinn mun sameinast um róttæka pólitík, og þróttmesta alþýðan í Framsfl., Alþfl. og Kommfl. mun eiga eftir að vinna að sameiningunni, og við treystum því, að íslenzk alþýða standi saman í þeim hörðu átökum, sem formaður Sjálfstfl. talaði um. Hann mun eiga eftir að yfirvinna íhaldið, hvort sem það beitir ofbeldi eða lýðskrumi, eftir að hafa sigrað veilurnar í sínum eigin flokkum.