11.12.1937
Neðri deild: 47. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (1419)
124. mál, alþýðutryggingar
*Emil Jónsson:
Ég skal ekki blanda mér inn í þær almennu umr., sem fram hafa farið um þetta mál. Það hefir verið rætt frá ýmsum hliðum, og verður sjálfsagt gert betur, bæði með og móti. En ég hefi borið hér fram brtt. á þskj. 320, sem ég vildi fara nokkrum orðum um. Ég hefi lagt það til, að aftan við 20. gr. frv. komi nýr stafl., sem kveði á um það, að sjúkrasamlagsiðgjöld iðnnema skuli greidd af meisturum þeirra. — Þetta er vitanlega smávægileg breyt., sem ekki tekur að tala langt mál um, en ég skal þó geta þess, að í l. um iðnnám er svo kveðið á um, að meistarar skuli greiða sjúkra- og framfærslukostnað nemenda sinna meðan á veikindum þeirra standi. Þegar iðnnámslögin voru sett, voru alþýðutryggingalögin ekki til. Annars hefði náttúrlega verið sett um leið það ákvæði inn í tryggingarlögin, að sjúkrasamlagsgjöld nemenda skyldu greidd af meisturum þeirra, sem þá fríuðust við þau útgjöld, sem tryggingarnar tækju að sér. — En þar sem ég hafði búizt við því, að n., sem fjallaði um alþýðutryggingarnar, tæki þetta atriði upp í sitt frv., þá flutti ég ekki brtt. við iðnnámslögin og ekki heldur við þessi l. fyrr en nú, þar sem n. sá sér ekki fært að gera það.
Þetta atriði hefir valdið árekstri milli nemenda og meistara, og hefir fulltrúi lögmanns hér í Reykjavík tjáð mér, að þetta mál hafi komið til þeirra kasta í þó nokkrum tilfellum. Andi iðnnámslaganna er ótvírætt sá, að sjúkrakostnaður nemenda sé greiddur af meisturum, og er þess vegna eðlilegt og sjálfsagt, að tryggingarkostnaðurinn sé einnig greiddur af þeim. Ég hefi hér í höndum fjölmargar undirskriftir frá iðnnemum, þar sem þeir óska eindregið eftir því, að þessi breyt. verði gerð. Þá munar mikið um að borga þessar 4 kr. á mánuði af sínu 50–60 kr. kaupi.
Skal ég svo ekki fjölyrða um þetta frekar, en óska eftir því, að brtt. verði tekin til greina í sambandi við aðrar brtt., sem fyrir liggja.