11.12.1937
Neðri deild: 47. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1068 í B-deild Alþingistíðinda. (1420)
124. mál, alþýðutryggingar
*Bergur Jónsson:
Ég ætla ekki að fara út í almennar umr. um greinar þessa frv. eða brtt., því að hv. frsm. meiri hl. n. mun vitanlega svara þar fyrir — En það, sem kom mér til þess að standa upp, voru ummæli hv. frsm. minni hl. viðvíkjandi 1. brtt. okkar meirihl. manna á þskj. 304, þar sem það er lagt til að breyta þannig til um skipun tryggingarráðsins, að ráðh. skipi það eftir tilnefningu þriggja stærstu þingflokkanna. Ég veit satt að segja ekki, hvaða ástæða hefir legið til grundvallar fyrir því, að hv. frsm. lét svo um mælt, að frá sjálfst. mönnum væri kominn þessi löngun til að breyta tryggingarlögunum að þessu leyti. Hv. þm. hlýtur að muna eftir því, að á fyrsta fundinum, sem rætt var um þetta frv., tók ég það fram viðvíkjandi 7. gr. tryggingarlaganna, að við framsóknarmenn vildum láta breyta henni í þá átt, að stærstu þingflokkarnir hefðu menn í tryggingarráðinu. En það, sem var því til fyrirstöðu, að hægt væri að ganga frá því atriði til fullnustu, var eingöngu það, sem nú virðast allir vera sammála um, að nauðsynlega beri að tryggja það, að í tryggingarráðinu sé einn meðlimur tryggingarfræðingur eða hagfræðingur og annar lögfræðingur. Þetta var eina framkvæmdaratriðið, sem stóð í veginum fyrir því, að þá þegar væri gengið frá þessari breyt. Og ég verð að segja það, að mér finnst það undarlegt af hv. þm. Snæf. að vilja endilega gefa það í skyn, að við höfum verið reknir til þess að gera þessa breyt. nú, sem við höfðum fyrirfram ákveðið að gera, eins og hv. þm. sjálfum er vel kunnugt um. Ég býst ekki við, að það undirstriki neitt sterkar hinn einlæga vilja sjálfstæðismanna til þess að fylgja lýðræðisreglum, þó að hv. þm. geri tilraun til þess að draga úr vilja okkar framsóknarmanna um að gera slíkt.
Hv. frsm. minni hl. minntíst einnig á breyt. þær, sem í frv. eru á kaflanum um atvinnuleysistryggingarnar, og tók það fram, að sjálfstæðismenn væru yfirleitt andvígir þeim kafla. Hann lét einnig svo um mælt, að að væri auðsjáanlega fyrir harðfylgi jafnaðarmanna, að þessi smávægilega breyt. er gerð á einum lið einnar gr. í þessum kafla. En ef hv. þm. athugar liðinn, eins og líka var gert í n., þá sér hann, að hér er alls ekki um neina efnisbreyt. að ræða frá því, sem áður var, heldur eingöngu það orðað betur, sem áður var dálítið klaufalega orðað.
Að lokum vil ég svo taka það fram, að enda þótt við stöndum fast á því að vilja koma fram þeim réttarbótum, sem í frv. felast, og munum þess vegna ekki samþ. hina rökst. dagskrá sjálfstæðismanna, þá höfum við allir í meiri hl. áskilið okkur að bera fram frekari brtt. við 3. umr., því að það má vel vera, að við nánari athugun komi fram ýms atriði í frv., sem ástæða er til að breyta.